Æskan og hesturinn

  • 27. mars 2012
  • Fréttir
Æskan og hesturinn

Fjölskyldusýningin Æskan og hesturinn verður haldin á sunnudaginn kemur, þann 1. apríl.

 
Tvær sýningar verða þann dag, kl 13 og 16. Búist er við mikilli aðsókn enda frítt inn!
 
Krakkarnir í hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu og gestafélagið Þytur, hafa lagt nótt við dag að æfa sín atriði og eru til í tuskið á sunnudaginn.
 
Atriðin eru af ýmsum toga: Smalakeppni, fimleikar á hestum, pollar í skrautbúningum, töltslaufur 10-12 ára krakka, afreksknapar og margt margt fleira.
 
Æskan og hesturinn er hluti Hestadaga í Reykjavík og verður lokapunktur þeirrar hátíðar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link