Af smalakúnstum á Hólum
Hið svokallaða smalapróf fór fram þann 4. mars sl. í Þráarhöll. Nemendur á 1.ári hestafræðideildar og nemendur á 3.ári í BS – hestafræði þreyttu prófið. Prófið byggist á því að leysa ýmsar þrautir á hesti og reynir mikið á leiðtogahlutverk knapans. Nemendur á 1.ári þjálfa sinn eigin hest í þessi verkefni. Mögnuð tilþrif sáust hjá nemendum og er ljóst að um frambærilega smala er að ræða!
www.holar.is – Vigdís
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH