Afmælisveisla!
Fjölskyldurekið fyrirtæki í 50 ár! Mynd: Úr einkasafni.
Íslenska fjölskyldufyrirtækið Ástund fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður boðið til veislu seinnipartinn í dag frá kl. 17:00 til 21:00 í verslun Ástundar, Lynghálsi 3, Reykjavík. Léttar veitingar verða á boðstólum, lifandi tónlist, opið söðlasmíðaverkstæði og vörur á ríflegum afslætti.
Verslunin Ástund var formlega stofnuð í nóvember 1976. Nafn hennar vísar til þess að leggja rækt við áhugamál sín af elju, natni og ástríðu. Margt hefur á daga verslunarinnar drifið þessi fimmtíu ár. Í upphafi var rekin ritfanga- og bókabúð samhliða sölu á hesta- og veiðivörum, síðar var boðið upp á fimleika- og dansvörur, auk knattpspyrnuvarnings en Ástund rak um árabil “Official Megastore” á grunni samnings við Manchester United.
Árið 1986 hóf Ástund að hanna og framleiða hnakka og önnur reiðtygi í samstarfi við marga af fremstu knöpum landsins. Var það upphafið að framleiðslu vinsælla hnakka á borð við Winner Plus, Xenophon, Epona, Wakanda, IceLand og nú síðast Ástund Victory.
Starfsemin hafði lengi aðsetur í Austurveri en er nú til húsa að Lynghálsi 3, Reykjavík. Þar er boðið upp á alhliða þjónustu og vörur fyrir hesta og knapa, fatnað og útivistarvörur.
„Á 50 ára afmælinu horfir fjölskyldan og starfsfólk Ástundar stolt um öxl,“ segir Guðmundur Arnarson, eða Mummi í Ástund eins og hann er oftast kallaður. „Hálf öld í rekstri væri óhugsandi án þess góða samferðafólks, starfsmanna, samstarfsaðila og viðskiptavina sem hafa stutt fyrirtækið af heilum hug. Ástund þakkar einlæglega fyrir samfylgdina, vináttuna og ómetanlegt traust í 50 ár.“
Hér má sjá Fésbókarsíðu afmælisveislunnar í kvöld: Ástund í hálfa öld
Herlegheitin halda áfram næstu daga líkt og sjá má á nýrri heimasíðu verslunarinnar: https://astund.is
Því er ljóst að Ástundarfólk er hvergi að baki dottið og hver veit nema haldið verði aldarafmæli árið 2076! Þau ykkar sem reiknið ekki með að eiga heimangengt 2076 skuluð ekki láta ykkur þetta tækifæri úr greipum renna.
Margareterhof er selt
Hver er þín framtíðarsýn fyrir Landsmót?
Uppsveitadeildin 2027