Nær dauða en lífi í Fnjóská
Fnjóská í ham sumarið 2021. Mynd: Fanney Hrund Hilmarsdóttir.
Sagan hefst í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjasýslu. Það er hásumar og yfir vakir hinn eilífi dagur norðursins. Angan af gróandi jörð leggur fyrir vitin og allt um kring kveða fuglar sín pörunarljóð. „Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær.“
Jódynur 130 hrossa vekur fíngerð birkilauf af værum blundi. Lag þeirra er taktfast og kunnuglegt landinu sem hefur legið hér svo lengi og lagt við hlustir. Undir leikur áin þunga, dimma hljóma.
Glaðbeittur tuttugu manna hópur hefur haldið um stóðið yfir Vaðlaheiði, niður í Fnjóskadal hins aldna Vaglaskógar og tekið stefnuna á Grenivík fyrir kvöldið. En, til þess verður hann að fara yfir eina vatnsmestu bergvatnsá landsins og þá allra köldustu. Þessi staðreynd vekur engan sérstakan ugg hjá knöpunum, þeir hafa farið vaðið áður og eru vel staðkunnugir.
En, þennan dag, einmitt þennan dag, þekkja þeir ekki ána. Þennan dag þekkir enginn ána.
Knaparnir halda þétt um reksturinn, njóta gæða fákanna sem leika listir sínar á þéttum árbakkanum. En hvað vita þeir sem knaparnir vita ekki? Því ókyrrast þeir þegar vaðið nálgast? Heyra þeir forynjuna rumska?
„Ofar, ofar!“ heyrist hrópað úr hópnum. „Við verðum að koma þeim ofar!“
Reksturinn tvístrast, tryllist og æðir stjórnlaust um tún og eyrar. Áin virðir fyrir sér viðkvæm lífin nálgast. Hún hefur fylgst með jöklum hverfa, hestum birtast og blandast, breytast í Íslandshestakyn. Hún hefur grafið dali og sorfið stein, heimt líf – nú síðast fyrir tveimur árum.
„Ofar!! Á vaðið!“
Úr djúpinu berast böl og ergi. Þegar snjór er til fjalla þolir áin ekki blíðviðrið sem ríkt hefur síðustu daga. Hún bólgnar og blánar, gruggast svo og gránar. Úr djúpinu rís forynja, kaldbrjósta og slóttug.
Tíminn er naumur, nei, hann er enginn. Knapar verða að hugsa hratt því áin nálgast óðfluga. Uggurinn sem þegar hefur læðst að hestunum leggur nú kalda slóð niður bak knapanna. Þeir eru peð á leiksviði stóðs og stórfljóts.
Klofningurinn úr rekstrinum steðjar að ánni, allt of neðarlega. Á eftir hleypir knapi, söguhetjan okkar. Hann er enginn nýgræðingur í hnakknum; ræktandi, tamningamaður og landsþekktur knapi til áratuga. Alls grunlaus um nístingskaldar krumlur forynjunnar sem bíður átekta.
„Hoohhh hohhhh!“ hann hastar á hópinn, sveigir hryssuna til vinstri, svo hægri. Vill ekki gefast upp í baráttunni við stóðið því hann veit að það skiptir máli að hitta á vaðið. Hversu miklu, veit hann þó ekki. Veit ekki að Fnjóská er barmafull af ískaldri snjóbráð ofan af fjöllum. Vatnsborðið tveimur metrum hærra en venjulega. Hitastigið rétt yfir frostmarki.
Forynjan brýnir klærnar og hlær dimmum hlátri undirdjúpanna. Klofningurinn sér hinn hluta stóðsins ösla vaðið litlu ofar og um leið verður vatnsflaumurinn seyðandi. Hann lokkar hjarðdýrin til sín. Hrossin vaða út í beljandi strauminn. Á góðum degi er þessi hluti árinnar ófær. Á degi sem þessum er hann lífshættulegur.
Söguhetjan og hryssan hendast í ána. Helkuldinn lætur höggin dynja á brjóstinu svo þau missa andann. Straumurinn hrífur hryssuna sem kraflar sig upp, prjónar og missir svo fæturna. Stinnur skrokkurinn, vöðvafyllt lendin, sperrtur makkinn – krafturinn sem knýr fram yfirferðartölt, harðastökk og skeiðsprett þess á milli verður að engu í ísköldum krumlum árinnar.
Við Urðarbrunn í Ásgarði strengja örlaganornir þráð sín á milli.
Söguhetjan okkar veltist um í vatninu og veit ekki hvort er upp og hvort er niður, líf eða dauði. Forynjan herðir takið, kreistir úr honum kraftinn, slítur af honum gleraugun og býr sig undir að svolgra hann í sig eins og ósjálfbjarga hvítvoðung. Draga hann niður í annan heim. Í Ásgarði munda þær flugbeitt skærin.
…
Áin svöl og skyggð
rennur gegnum gljúfur
grænrökkvaðra skóga,
byltist undan brúnni
barmafull af hryggð.
Aldrei drenginn dreymir
dul, sem áin geymir
hálf í undirheimum,
hálf í mannabyggð.
…
Knaparnir fylgjast lamaðir með vini sínum hverfa í ána og vita að ekkert er í þeirra höndum lengur.
En hvað fer um huga söguhetjunnar okkar sem byltist í ánni helstirður af kulda? Útlimirnir dofnir og gegnumkaldir, hver hugsun eins og reykur sem engin leið er að fanga. Það er svo freistandi að gefast upp. Hann er þreyttur, svo óskaplega þreyttur. Aðeins eitt er yfirsterkara þreytunni og það er þrjóskan. Söguhetjan okkar nær böndum yfir huga sinn eitt augnablik og skilur … Skilur að hún er hans eina von.
Hryssan.
Hryssan sem enn berst við hlið hans.
Hryssan sem hefur á hann margfaldan styrk.
Hryssan sem hann veit að mun berjast fyrir lífi sínu. Og nái forynjan þeim ekki í sundur – mun hún berjast fyrir lífi hans líka.
Stirðir fingurnir grípa dauðahaldi í fax hryssunnar. Hún reigir sig, kraflar með framlöppunum og fýlar grön. Straumurinn slengir þeim til og frá en hún heldur áfram að berjast. Þenur út nasirnar og svolgrar loftið, lokar þeim þegar straumurinn sökkvir þeim báðum.
Forynjan hikar. Hryssan ber nafn systur hennar. Nafn sem hún skilur, virðir jafnvel.
Og kannski er það ástæða þess að söguhetjan okkar lifir af.
Sú staðreynd að hann hangir í faxi hryssunnar Þverár.
Þverá hefur frá fyrstu tíð verið umlukin vatni; ættuð frá Þverá í Skíðadal, ræktuð á bænum Efri-Rauðalæk. Af vatni er hún komin. Að vatni mun hún aftur verða. En nú skal hún – úr vatni upp rísa.
Hryssan syndir af stað. Berst í gegnum strauminn með háum fótahreyfingum og ræktanda sinn, þjálfara og vin hangandi í faxinu. Hún skal berjast, hún skal ekki bugast og lífsvilji hennar skal bjarga þeim báðum. Og þannig öslar hún strauminn yfir þetta heljarfljót.
En þá rís hann fyrir augum þeim – bakkinn. Þriggja metra hár og snarbrattur.
…
Silfurfölan flipann
forðast hann að væta,
mænir miðja vega
milli bakka og áls,-
knýr með klökku hneggi
klettafjallsins veggi,
meðan örend áin
um hann vex í háls!
…
Í Ásgarði gæla hárbeitt blöð við þunnan lífsþráð. Söguhetjan okkar er magnþrota.
En hryssan gefst ekki upp. Heldur áfram að berjast, kastast til og frá við háan bakkann en þýðist ekki straumnum. Söguhetjan íhugar að sleppa hryssunni. Hann er of þrekaður til að berjast lengur – en honum þykja það slæleg laun fyrir seiglu hennar. Svo hann brýnir kaldan hugann.
Hryssan nálgast bakkann í enn einu kastinu. Söguhetjan okkar pírir augu á kafi í móðu. Það glittir í grænan gróður. Söguhetjan okkar safnar saman þeim litlu kröftum sem eftir eru og hendir sér í átt til lands.
Örlaganornirnar hika.
Söguhetjan sökkvir kaldstirðum fingrum í birkið, pískar fæturna af stað, krafsar sig upp á bakkann og hnígur þar niður. Vitundin fjarar út og hugurinn fetar einstig milli lífs og dauða.
Og með það sama gefur hryssan eftir. Leyfir straumnum að hrífa sig og rekur niður ána.
Samferðamenn hópast að söguhetjunni en fylgja hryssunni eftir með augunum. Áin fleytir henni niður á grynningar þar sem Þverá rís úr Fnjóská og slagar á land, sátt með dagsverkið. Þarfasti þjónninn.
Nornirnar við Urðarbrunn leggja frá sér skærin.
Áin yppir öxlum og rennur sína leið.
Ekki í dag, hugsar hún. Ekki í dag.
______________________________________
Saga byggð á frásögn Baldvins Ara Guðlaugssonar, Efri-Rauðalæk, af atviki úr hestaferð í sumar:
Baldvin Ari tekur fram að annar félagi þeirra hafi einnig dottið í ána, orðið viðskila við hest sinn en verið bjargað af samferðamönnum á grynningum neðar í ánni – hvar hann lá örmagna og gat sig hvergi hreyft.
„Ég slasaðist ekki,“ segir Baldvin, „var bara allur aumur og krafsaður. Maður var samt helvíti skrítinn andlega eftir þetta. Mig langaði ekkert sérstaklega að ræða þetta þegar þú hringdir en fannst svo eins og það gæti orðið öðrum víti til varnaðar: Hvað svona vötn geta verið varasöm og breytileg. Ég hef margoft farið í ár, oft sundriðið og jafnvel í sjó, en þetta var engu líkt. Straumharkan og kuldinn. Ég get allavega sagt það að ég fór með „Faðir vor“ um kvöldið og þakkaði þeim sem vöktu yfir mér, hver sem það voru.“

Þverá frá Efri-Rauðalæk ásamt ræktanda sínum og knapa Baldvini Ara Guðlaugssyni. Mynd: Úr einkasafni.
Í sögu þessari má finna brot úr eftirfarandi textum:
1. Vor um Vaglaskóg
2. Vögguþulu eftir Frederico Carcia Lorca í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing