Kveikurinn brennur út í Ástralíu
Kveikur frá Stangarlæk og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á LM 2018. Ljósmynd: Jens Einarsson
Kveikur frá Stangarlæk 1 hlaut verðskuldaða athygli sem einstaklingur. Hin mikla mýkt, fas, fimi, rými og gott geðslag vakti fiðrildin innra með mörgum hestamanninum. Ræktendur flykktust undir hann í þeirri von að uppskera innan fárra ára fasmikinn mýktar gæðing. Mörgum varð að ósk sinni og til urðu: Tinni frá Árdal, Svartur frá Vöðlum, Baldvin frá Margrétarhofi, Draupnir frá Kverk, Huginn frá Neðra-Seli, Hulinn frá Breiðstöðum, Kylja frá Margrétarhofi, svo fá ein séu nefnd. Nú er okkur ljóst að Kveikur var ekki aðeins magnaður einstaklingur, hann var jafnframt kynbótahestur en sérstaða hans felst líklega í ofur klárhrossum. Fyrrnefndur Baldvin státar af einkunninni 9,56 fyrir hæfileika án skeiðs, Hulinn 9,43, Kylja 9,25, Fálki frá Traðarlandi 9,24, Kabarett frá Skálakoti 9,17, Senía frá Breiðstöðum 9,15 sem stendur jöfn Tinna. Við þá einkunn bætir síðastnefndi methesturinn huggulegri 9 fyrir skeið!
En lengi hafa guðirnir öfundað mennina. Kveikur féll frá aðeins 12 vetra gamall í ágúst 2024 og varð Íslandshestaheiminum mikill harmdauði. Missirinn var þó ekki íslenskra ræktenda þar sem Kveikur var fluttur út haustið 2021 og lindin því utan seilingar síðustu þrjú æviárin. Það sama verður ekki sagt um eigendur hans og ræktendur á meginlandi Evrópu sem voru rétt að byrja. Næstu ár munu fyrstu afkvæmi Kveiks því marka slóð hans utan landsteinanna. En hvar mun sú slóð enda?
Jú, gott fólk, hún mun enda innan um kengúrur, kóalabirni og köngulær á stærð við bústna töskuhunda. „Í landinu undir niðri“ – Ástralíu.
Kveikurinn logar – á meðan hann er frosinn
En hver er forsaga þess að enn finnst frosið sæði úr Kveik frá Stangarlæk í Ástralíu, nú tveimur árum eftir að hann féll?

Fönix frá Highgrove farm. Þriggja vetra sonur Kveiks og Fanneyjar frá Auðsholtshjáleigu, með 121 stig í kynbótamati, hæst allra lifandi hrossa í Ástralíu. Mynd: Nele Koemle
„Árið 2019 fór ég að leita leiða til að flytja frosið sæði til landsins úr íslenskum hestum,“ segir Nele Koemle, ræktandi og eigandi Íslandshestabúgarðsins Litla Staðar í Viktoríu-fylki Ástralíu. „Líföryggisreglur eru mjög strangar í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi svo upp hófst mikið ferli. Að endingu fann ég sæðingarstöð í Danmörku sem hafði leyfi til innflutnings hingað. Í samstarfi með þeim, dýralæknum, danska ríkinu ásamt áströlskum yfirvöldum tókst okkur að fá hingað sæði úr Héðni frá Feti.“
Rannsóknir sem hlutaðeigandi stóðhestur þurfti að undirgangast fól meðal annars í sér athugun á smitandi blóðleysi (e. EIA), slagæðabólgu (e. EVA), smitandi legbólgu (e. CEM), blóðsníkjudýrasýkingu (e. Equine Piroplasmosis) og hestainflúensu (e. Equine Incluenza). Sjálf hefur undirrituð reynslu af ströngum líföryggisreglum ástralska ríkisins. Eftir að hafa beðist vægðar, með blauta efri vör af svita, fékk ég að halda forláta viðar-matarprjónum sem ég keypti á götumarkaði í Laos. Ávaxtahundurinn þefaði þá auðvitað uppi, sem og hnetupokann, sem var umsvifalaust gerður upptækur og ég á barmi þess að fá skilorðsbundinn fangelsisdóm.
En nóg um aldingarðinn Ástralíu, þar sem asísk hitabeltistré vaxa upp af viðarprjónum – hvernig kom þetta til með Kveik?

Glæsir frá Litla Stað, veturgamall Kveikssonur. Mynd: Nele Koemle.
„Árið 2020 fékk Ástralska Íslandshestafélagið tölvupóst frá Gitte og Flemming Fast, eigendum Lindholm Hoje Stutteri. Þau buðu okkur frosið sæði úr þeirra stóðhestum. Ég varð auðvitað himinlifandi! Þau gengu í að fá fullnægjandi vottun fyrir sæðingarstöð sína svo senda mætti sæðið til Ástralíu. Í kjölfarið fengum við hingað sæði úr Styrk frá Leysingjastöðum og Kveik frá Stangarlæk. Sæðið geymir sæðingarstöð (e. Total Livestock Genetics) sem flytur inn og geymir sæði úr kúm, sauðfé og hrossum. Gangi allt að óskum líða tíu ár áður en sæðisgæðin dala.“
Framliðnir fjölga sér
Í Ástralíu eiga framliðnir því góða möguleika á að fjölga sér og kostnaðurinn er vel viðráðanlegur. Fyljist hryssa við fyrstu sæðingu kostar meðferðin í kringum 800 ástralska dollara (67.000 kr.) sem felur í sér meðferðargjaldið sjálft ásamt nokkrum sónarskoðunum.
„Nú þegar hafa tíu Kveiksbörn og fimm Styrksbörn fæðst í Ástralíu ásamt því að fjórir ræktendur hafa pantað Kveikssæði í hryssur sínar þetta vorið. Við erum þeim Gitte og Flemming afskaplega þakklát fyrir að veita okkur tækifæri til að eignast afkvæmi þessara frábæru hesta og bæta þannig genamengið hér í Ástralíu.“

Kveiksdóttirin Eylíf frá Litla Stað. Mynd: Birgit Kossmann.
Nei, lesendur góðir, þetta er ekki vísindaskáldsaga. Hundruð þúsunda örsmárra Kveika lifa freðnir í hinni heitu Ástralíu og fyrir þeim liggur að breyta landslagi Íslandshestsins á suðurhveli jarðar.
Samkvæmt Draumsögum frumbyggja Ástralíu er það Kakaburra-fuglinn sem hlær sólina niður síðla hvert kvöld. Eitthvert kvöldið, innan átta ára, verður það því Kakaburra-fuglinn sem hlær niður síðustu lífs-sól gæðingsins Kveiks frá Stangarlæk. Frægðarsól hans mun þó áfram skína á meðan afkomendur hans um allan heim slá tæran fjórtakt við fagurstokkað taglið.
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild