„Heiður og hvatning til að halda áfram á sömu braut“
Valdís Björk og Dagný frá Svignaskarði. Ljósmynd: Óðinn Örn Jóhannsson
Valdís Björk er 29 ára gömul alin upp í Kópavogi. Hún byrjaði ung að sýna kynbótahross og sýndi fyrsta hrossið í fullnaðardómi árið 2015. Það var hryssan Hugsýn frá Svignaskarði sem er úr ræktun foreldra hennar. Undan henni og Degi frá Hjarðartúni er Dagný frá Svignaskarði sem Valdís sýndi í flokki 4.vetra hryssa á Landsmótinu í sumar þar sem hún varð í 10.sæti, aðsópsmikil og flink klárhryssa. Þá sýndi hún einnig í þeim sama flokki hryssuna Happadís frá Brekku sem varð í fimmta sæti, flugvakur alhliðagæðingur. Hæst dæmd hrossið sem Valdís sýndi í sumar var þó 6.vetra gamall stóðhestur, Breki, úr ræktun tengdaforeldra hennar á Brekku í Biskupstungum. Hann hlaut 8,49 í aðaleinkunn jafnvígur alhliðahestur með úrvals hægt tölt sem hann hlaut 9,5 fyrir.

Valdís og Hugsýn í kynbótabrautinni árið 2015 í fyrstu sýningu Valdísar. Ljósmynd: Eiðfaxi
Heiður og hvatning til að halda áfram
Valdís býr nú og starfar að Brekku í Biskupstungum þar sem tengdafjölskyldan býr, en sambýlismaður hennar er Jón Óskar Jóhannesson. “Það er mikill heiður að fá þessi verðlaun. Klapp á bakið fyrir vinnu síðustu ára og hvatning til að halda áfram á sömu braut”. Valdís hefur allt tíð verið í hrossum og var mikið í kringum systur sína, Berglindi Rósu Guðmundsdóttur og hennar mann, Daníel Inga Smárson, þegar hún var yngri. “Ég var einnig í mörg sumur í Halakoti hjá Einari Øder og Svanhvíti Kristjánsdóttur, þá vann ég einn vetur hjá Daníel Jónssyni þegar hann var í Hafnarfirði. Ég fór svo í Háskólann á Hólum og útskrifaðist þaðan árið 2021 og hef síðan starfað sjálfstætt.”
Aðspurð um hvaða knapar séu hennar helstu fyrirmyndir segist hún ekki geta nefnt einhvern einn. “Það eru til svo margir góðir knapar og maður getur horft til þeirra og reynt að læra af þeim.” Valdís leggur áherslu á nákvæmni við þjálfun hrossa en reynir að passa að tapa ekki úr þeim gleðinni. “Það er best að reyna að blanda þessu tvennu saman. Ég reyni að gleyma mér ekki í nákvæmninni og ríð hrossunum fram og viðheld þannig gleði. Ég vinn líka mjög mikið við hendi, sérstaklega með yngri hrossin og finnst það mjög áhrifaríkt að tengja saman þá vinnu við það sem gerist eftir að á bak er komið.”

Valdís Björk og Happadís frá Brekku. Ljósmynd: Ásta Björk Friðjónsdóttir
Fæst orð bera minnsta ábyrgð
Valdís hefur nú sýnt rúmlega 40 sýningar í fullnaðardómi, en hvað er það við kynbótasýningar sem henni finnst svo heillandi. “Mér finnst þetta mjög skemmtilegt fyrirkomulag. Að geta mætt með ung hross og sýnt hvað í þeim býr í stað þess að bíða í lengri tíma þar til þau geta komið fram í keppni. Það heillar mig mjög mikið þegar ung hross hafa andlegan og líkamlegan þroska til að koma fram og mér finnst að fólk eigi að sækja í þessi hross sem að það geta. Ég trúi að það sé eitt það verðmætasta fyrir ræktunarstarfið.”
Þrátt fyrir að líka vel við það að sýna kynbótahross telur hún að þar sé svigrúm til breytinga. “Mér finnst að það mætti endurskoða þröskulda er varða hægt tölt og einkunn fyrir eiginleikann tölt. Mér finnst þetta ekki alltaf gefa rétta mynd af hrossinu að það geti ekki hlotið t.d. 9,5 fyrir tölt nema að ná 9,0 fyrir hægt tölt. Einkunnin 8,5 er t.d. mjög góð einkunn og mér finnst að þau hross sem það hljóta ættu að geta náð hæstu einkunn fyrir tölt. Kannski væri bara réttast ef hæga töltið fengi sitt eigið vægi og þessir þröskuldar væru ekki til staðar“.
En þá berst talið af hestakostinum í vetur, er mikið af úrvals tryppum á húsi sem stefnt er með í dóm næsta sumar? “Ég er með mikið af ungum hrossum á fjórða og fimmta vetri, fjögur af þeim sýndi ég síðastliðið vor og mæti kannski með þau aftur. Annars bera fæst orð minnsta ábyrgð og því best að spara yfirlýsingar og láta þetta koma í ljós. Maður veit aldrei alveg hvernig þau þróast, maður er stundum með mjög efnileg tryppi að hausti sem eru ennþá bara efnileg að vori og svo öfugt.

Hryssurnar Dagný og Happadís voru báðar í verðlaunasætum í 4.vetra flokki á Landsmóti í sumar. Valdís Björk heldur í Dagný og Jón Óskar í Happadís á baki hennar situr María Mekkin, dóttir þeirra.
Texti sem Þorvaldur Kristjánsson las upp við verðlaunaveitinguna
Valdís Björk Guðmundsdóttir hefur sýnt hross undanfarin ár með eftirtektarverðum árangri. Hún sýndi tíu hross í fullnaðardóm í ár. Hæstan dóm hlaut Breki frá Brekku en hann hlaut 8,49 í aðaleinkunn, m,.a. 9,0 fyrir fegurð í reið og 9,5 fyrir hægt tölt. Þá var hún með tvær fjögurra vetra hryssur í verðlaunasæti á Landsmótinu í sumar. Happadís frá Brekku sem hlaut 9,0 fyrir skeið, greitt stökk og samstarfsvilja. Þá var Dagný frá Svignaskarði afar eftirminnileg frá Landsmóti; fjögurra vetra með 9,0 fyrir bæði greitt og hægt stökk, samstarfvilja og fegurð í reið. Þá sýndi hún einnig Hringaná frá Hrepphólum, fimm vetra klárhryssu. Hún hlaut 8,23 fyrir hæfileika og með 9,0 fyrir flesta þætti hæfileikanna. Skugga frá Árheimum er fimm vetra hryssa með 9,0 fyrir tölt, hægt tölt og fegurð í reið. Valdís Björk hefur vakið athygli fyrir að koma fram með vel undirbúin hross til sýninga, þau eru fallega uppsett og samspilið við hestinn einkennist af léttleika og sanngirni. Félag hrossabænda vill með þessum verðlaunum hvetja Valdís til áframhaldandi góðra verka í hrossaræktinni og við sýningar kynbótahrossa. Innilega til hamingju með árangurinn!

Valdís Björk með hvatningarverðlaun Hrossadeildar bændasamtaka Íslands
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing