Aftaka veður í fjórgangnum

  • 6. júlí 2022
  • Fréttir

Eins og sést á myndinni voru skilyrðin slæm á Hellu sérstaklega þegar síðustu hestar riðu í braut. Grenjandi rigning og hífandi rok

Niðurstöður og myndband frá forkeppni í fjórgangi

Já það er ekki hægt að segja að veðurguðirnir hafi verið hliðhollir keppendum í fjórgangi en síðustu hestarnir lentu eiginlega í aftaka veðri. Þrátt fyrir það virtist það ekki bíta mikið á Helgu Unu Björnsdóttur og Hnokka frá Eylandi sem enduðu í efsta sæti í fjórgangnum með 7,77 í einkunn. Glæsileg einkunn það en þau voru einnig í slaktaumatöltinu fyrr um kvöldið.

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi eru önnur inn í úrslit með 7,63 í einkunn en þau eru einnig önnur inn í úrslit í tölti T1. Jöfn þeim er Hákon Dan Ólafsson á Hátíð frá Hólaborg en það hefðu kannski ekki margir veðjað á þau fyrir úrslitin. Frábær sýning og verðskuldað sæti í úrslitum.

Niðurstöður úr fjórgangum eru hér fyrir neðan ásamt myndbandi af efstu þremur hestum frá Alendis.is.

Hér með er öllum forkeppnum og milliriðlum lokið á þessu Landsmóti, nú er einungis eftir skeiðgreinar og úrslit en dagskrá hefst á morgun á aðalvellinum kl 14:30 á keppni í gæðingaskeiði. Síðan eru b úrslit í öllum flokkum gæðingakeppninnar og á eftir þeim er setningarathöfn mótsins kl. 19:20 en hún fer reyndar fram á kynbótavellinum. Eftir setningarathöfnina er fyrri umferð kappreiða og dagskrá endar á b úrslitum í tölti.

Fjórgangur V1 – Forkeppni – Landsmót
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Þytur 7,77
2-3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi Máni 7,63
2-3 Hákon Dan Ólafsson Hátíð frá Hólaborg Fákur 7,63
4 Matthías Kjartansson Aron frá Þóreyjarnúpi Sprettur 7,57
5 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Sleipnir 7,50
6 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Geysir 7,40
7-10 Ragnhildur Haraldsdóttir Hrönn frá Ragnheiðarstöðum Sleipnir 7,17
7-10 Helga Una Björnsdóttir Fluga frá Hrafnagili Þytur 7,17
7-10 Mette Mannseth Skálmöld frá Þúfum Skagfirðingur 7,17
7-10 Eyrún Ýr Pálsdóttir Veröld frá Dalsholti Skagfirðingur 7,17
11-12 Brynja Kristinsdóttir Tími frá Breiðabólsstað Sörli 7,13
11-12 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Steinar frá Stuðlum Sleipnir 7,13
13 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Stimpill frá Strandarhöfði Geysir 7,00
14 Lea Christine Busch Kaktus frá Þúfum Skagfirðingur 6,97
15 Þorgils Kári Sigurðsson Fákur frá Kaldbak Sleipnir 6,93
16 Þór Jónsteinsson Frár frá Sandhól Léttir 6,87
17 Birgitta Bjarnadóttir Halldóra frá Hólaborg Geysir 6,83
18 Ólafur Ásgeirsson Fengsæll frá Jórvík Geysir 6,80
19 Sigurður Sigurðarson Leikur frá Vesturkoti Geysir 6,73
20 Gústaf Ásgeir Hinriksson Ási frá Hásæti Fákur 6,67

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link