Áhugamannadeild, myndbandsdiskar og landsmótsmál
Áhugamannadeild Spretts var haldin í fyrsta skiptið í vetur.
Árið 2015 var viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Í dag og á morgun munum við birta örstutta annála og rifja upp tíðindi ársins. Við byrjum á síðastliðnum vetri:
- Margur hestamaðurinn fékk myndbandsdiska frá LM2014. Myndböndin af kynbótahrossunum þótti ekki standast kröfur neytenda. Stjórn Landsmóts ákvað að bjóða þeim sem keypt höfðu diskinn að skila honum gegn fullri endurgreiðslu. Átti síðar meir að ákveða hvort gefið yrði út nýjan eða endurbættan disk. Ekki hefur það verið gert þegar þetta er skrifað en hægt er að nálgast eitthver myndbönd inn á WorldFeng.
- Uppskeruhátíð fyrir árið 2014 var haldin í byrjun árs 2015. Þar voru valdir knapar ársins 2014. Árni Björn var valin knapi ársins, Reynir Örn Pálmason íþróttaknapi, Þórarinn Ragnarsson gæðingaknapi, Teitur Árnason skeiðknapi, Gústaf Ásgeir Hinriksson efnilegasti og Daníel Jónsson kynbótaknapi. Þóroddsstaðir var valið ræktunarbú keppnishrossa og hlaut Einar Öder Magnússon gullmerki LH.
- Útskrift í raunfærnimati í hestamennsku fór fram í fyrsta skipti. Það voru sautján sem útskrifuðust og flestir þeirra hafa langa og víðtæka reynslu á sviði hestamennsku. Matið sjálft snýst um að meta reynslu og þekkingu sem fengin er á vinnumarkaði til móts við kröfur skólakerfis í viðkomandi grein.
- Hestamannafélagið Sprettur fékk leyfi til að halda sameiginlegt Íslandsmót fullorðna og yngri flokkana.
- Páll Bragi Hólmarsson var valinn liðstjóri íslenska landsliðsins á Herning.
- Hestamannafélagið Sprettur bauð upp á Áhugamannadeild sem sló í gegn.
- Skáreimin var bönnuð enn á ný á öllum alþjóðlegum og WR mótum, sem og á kynbótasýningum.
- Ákveðið var að leyfa ríkjandi heimsmeisturum í yngri flokkum að verja titil sinn að því tilskildu að þeir séu enn með aldur til að keppa í ungmennaflokki.
- Einar Öder Magnússon kvaddi okkur í febrúar enn hann var einn af okkar snjöllustu reiðmönnum og virtustu reiðkennurum Íslandshestamennskunnar.
- Ákveðið var að öll kynbótahross verða að vera með skráð DNA áður en þau mæta til dóms.
- Reynt var að halda ísmót fyrir yngri flokkana, “Ískaldir hestamenn”, en ekki tókst að halda mótið vegna lélegrar þátttöku.
- Í mars var ákveðið að Landsmót yrði haldið á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016.
- Hestadagar voru haldnir eins á áður.
- Þeir allra sterkustu voru færðir af ísnum og inn í reiðhöll en mótið var haldið í Spretti og sigraði Sigurður Sigurðarsson töltið á Örnu frá Skipaskaga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH