Ákvörðun tekin um val kynbótahrossa á LM

  • 12. mars 2024
  • Fréttir

Fróði frá Flugumýri stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta á LM2022 Ljósmynd: Nicki Pfau

Sami fjöldi og áður en eingöngu stuðst við aðaleinkunn

Fundargerð fagráðs í hrossarækt frá því þann 21. febrúar er nú aðgengileg á vef RML. Á fundinum var meðal annars tekið fyrir og rætt hvernig vali kynbótahrossa á Landsmót í sumar skyldi háttað.

Rétt tæpur helmingur

Líkt og fjallað var um á vef Eiðfaxa fyrr í vetur að þá voru klárhross á síðasta Landsmóti rétt tæpur helmingur þeirra sem þátttökurétt hlutu á mótinu eða 46% allra hrossa. Þessa aukningu má helst rekja til þess að árið 2020 ákvað fagráð að við val inn á landsmót væri farin sú leið að 75% hrossa í hverjum flokki væri valinn eftir aðaleinkunn og 25% hrossa eftir aðaleinkunn án skeiðs. Þá urðu breytingar á vægisstuðlum kynbótadóma árið 2020 þar sem vægi á brokki og feti var hækkað auk þess að hægt stökk fékk vægi í heildar einkunn hrossa.

Sami fjöldi 

Á fundi fagráðs var eftirfarandi ákveðið: Fagráð ákveður að 170 hross hafi þátttökurétt í einstaklingssýningum kynbótahrossa á Landsmóti 2024 þannig að viðhaldið sé þeim fjölda sem verið hefur frá árinu 2018. Einnig ákveður fagráð að viðhaldið verði þeim fjölda sem hafi þátttökurétt í hverjum flokki fyrir sig. Þá má einnig lesa í fundargerðinni að Fagráð ákveður að val kynbótahrossa á stöðulista fyrir Landsmót 2024 fari eftir aðaleinkunn.

Hér fyrir neðan má sjá fjölda kynbótahrossa á Landsmóti eftir hverjum aldursflokki og þá verður eingöngu stuðst við aðaleinkunn við valið.

 

Flokkur Fjöldi
7 vetra og eldri hryssur 15
6 vetra hryssur 30
5 vetra hryssur 30
4 vetra hryssur 20
4 vetra hestar 20
5 vetra hestar 20
6 vetra hestar 20
7 vetra og eldri hestar 15
Samtals: 170

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar