Álfamær skiptir um eiganda
Álfamær frá Prestsbæ var hæst dæmda 5.vetra hryssa ársins í fyrra hér á landi þegar hún hlaut 8,55 í aðaleinkunn. Í ár varð hún á meðal hæst dæmdu 6.vetra hryssa ársins þegar hún hlaut 8,62 í aðaleinkunn. Hún hefur nú skipt um eiganda og það er Anja Egger-Meier sem á hryssuna en ræktendur hennar eru Inga & Ingar Jensen í Prestsbæ.
Álfamær er háættuð undan tveimur af skærustu stjörnum Landsmóts 2011 þeim Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ, 137 stig hefur Álfamær í kynbótamati. Húin hlaut í sumar 8,53 fyrir sköpulag, 8,67 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,67. Hæst hlaut hún 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir samstarfsvilja og fet. Þórarinn Eymundsson sýndi hryssuna.
Spennandi verður að fylgjast með hver næstu skref hryssunnar verða hvort það verður keppni eða ræktun kemur í ljós.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH