Alþjóðleg menntaráðstefna í ágúst
Alþjóðleg menntaráðstefna FEIF verður haldin á Hólum 25.-26. ágúst nk. að er fram kemur í tilkynningu frá LH. Námskeiðið er opið fyrir hestafræðinga, tamningamenn og þjálfara á 1.-3. stigi Matrixunnar og alþjóðlega dómara FEIF.
„Á ráðstefnunni verður farið í þjálfun ásetu, stjórnun og síðast en ekki síst andlegan undirbúning og þjálfun knapa fyrir keppni. Þetta er ráðstefna sem engin má missa af sem er að kenna reiðmennsku.
Frestur til þess að skrá sig á ráðstefnuna rennur út 6.maí nk.
Að ráðstefnunni standa Háskólinn á Hólum, Landssamband hestamannafélaga, Félag hrossabænda, Félag Tamningamanna, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri ásamt FEIF. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskólans á Hólum eða hjá skrifstofu LH.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH