Auglýsing um umsóknir í Stofnverndarsjóð

  • 30. nóvember 2021
  • Fréttir

Frá Bændasamtökum Íslands:

 

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.

 

Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.

Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2021. Nánari upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins ([email protected]). Frestur til að skila inn umsóknum er til 5. desember 2021 og skal umsóknum skilað til:

Fagráðs í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík.

Fagráð í hrossarækt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link