Berg er Ræktunarbú ársins 2022 hjá Snæfellingi
Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Snæfellings 2022 fór fram í samkomuhúsi Grundarfjarðar í gærkvöldi. Frábær mæting félaga var á viðburðinn og voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu.
Hefð er fyrir því að veita knöpum í barna, unglinga og ungmennaflokki í félaginu hvatningarverðlaun fyrir þátttöku í mótum á afstöðnu tímabili.
Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu í barna og unglinga en það voru þau Haukur Orri Bergmann Heiðarsson sem hlaut þau verðlaun í barnaflokki og Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir sem hlaut þau verðlaun í unglingaflokki.
Knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Snæfelling árið 2022 er Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir.
Frábær árangur hjá Hörpu Dögg í unglingaflokki á árinu. Hefur hún tekið þátt í fjölda móta og staðið sig mjög vel og verið glæsilegur fulltrúi Snæfellings innan vallar sem utan.
Veittar voru viðurkenningar fyrir fyrir efstu hryssu og efsta stóðhest í hverjum flokki
Efsta 5 v hryssa er Stöð frá Bergi – aðaleinkunn 8,19 – Ræktendur og eigendur eru Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson.
Efsta 6 v hryssa er Þerna frá Hallkelsstaðahlíð – aðaleinkunn 8,23 – Ræktandi og eigandi er Guðmundur Margeir Skúlason
Efsta 7 v hryssa er Sandvík frá Bergi – aðaleinkunn 8,34 -Ræktandi og eigandi er Jón Bjarni Þorvarðarson
Efsti 4v stóðhestur er Höfði frá Bergi – aðaleinkunn 8,18 – Ræktandi og eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir
Efsti 5 v stóðhestur er Hrollur frá Bergi – aðaleinkunn 8,23 – Ræktendur og eigendur eru Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson.
Efsti 6v stóðhestur er Hlýri frá Bergi – aðaleinkunn 8,06 – Ræktandi og eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir
Efsti 7v stóðhestur er Gljátoppur frá Miðhrauni – aðaleinkunn 8,50 – Ræktandi er Ólafur Ólafsson og eigendur eru Máni Hilmarsson og VM Islandshästar AB
Ræktunarbú ársins 2022.
Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson á Bergi fengu viðurkenningu fyrir ræktunarbú ársins. Frá þeim voru sýnd fjöldi kynbótahrossa með góðum árangri.
Þotuskjöldurinn
Þotuskjöldurinn er afhentur þeim félagsmanni sem skarað hefur fram úr á sviði ræktunar, reiðmennsku eða félagsmála. Skjöldurinn er viðurkenning sem Leifur Kr. Jóhannesson fyrrverandi ráðunautur, ræktandi og einn af stofnendum Snæfellings, gaf félaginu til minningar um heiðursverðlauna hryssu sína Þotu frá Innra-Leiti
Sæmundur hefur komið að mörgum þáttum starfsins hjá okkur í Snæfellingi. Hann var 4 ár gjaldkeri félagsins og umsjónarmaður Hólslands á þeim tíma og byggði m.a. upp réttina þar.
Hann kom að uppbyggingu Kaldármela með mörgum öflugum félögum t.d. Óla í Ólafsvík, Ragnari í Hlíð og Högna Bæringssyni. Svo vitnað sé í orð viðkomandi: ,,Samstarfið við þessa félaga mína og marga fleiri hafa skilið eftir minningar sem eru dýrmætar.´´
Þotuskjaldarhafinn 2022 hefur skilið eftir sig talsvert stór spor á svæðinu í ræktunarlegu tilliti þó með óbeinum hætti. Hann flutti á svæðið stóðhestinn Huga frá Höfða, ól hann upp og tamdi. Hann lánaði klárinn að Naustum til notkunar og þar varð til m.a. ræktunarhryssan Hrísla frá Naustum sem hefur skilað mörgum afreksgripum.
Hin seinni ár hefur hann verið okkur hestamönnum haukur í horni með að merkja reiðleiðir í þjóðgarðinum á Snæfellsnesi, tala okkar máli og staðið vörð um að hestamenn hafi sem frjálsastan aðgeng að reiðleiðum í þjóðgarði Snæfellsness auk þess að hafa lóðsað hestamenn í gegn um þjóðgarðinn um árabil.
Stjórn vill þakka félagsmönnum fyrir skemmtilega samveru og velunnurum félagsins fyrir þeirra framlög. Sérstakar þakkri fær hún Margrét Sigurðardóttir sem gaf okkur verðlaunin sem veitt voru á uppskeruhátíðinni.