BLUE LAGOON úrslit í tölti og slaktaumatölti!

  • 24. mars 2024
  • Fréttir

Fimmtudaginn 21.mars fór fram keppni í slaktaumatölti T4 og tölti T7 og T3 í BLUE LAGOON mótaröð Spretts.

Góð þátttaka var í keppni barna-, unglinga- og ungmenna í öllum greinum. Systurnar Guðný Dís, Elva Rún og Kristín Rut sigruðu hver sinn aldursflokk í tölti. Í slaktaumatölti sigraði Ásthildur Sigurvinsdóttir barnaflokk, Fanndís Helgadóttir sigraði unglingaflokk og Harpa Dögg Bergmann sigraði ungmennaflokk.

Í verðlaun hlutu knapar m.a. páskaegg frá sælgætisgerðinni Góu, gjafapoka frá Pavo, umhirðuvörur og margt fleira frá Líflandi. Við þökkum styrktaraðilum okkar kærlega fyrir þeirra stuðning.

Sem fyrr mætti Anna okkar og tók ljósmyndir allt kvöldið af hestum og knöpum. Myndirnar má sjá á facebook síðu hestamannafélagsins Spretts.

Næsta mót verður gæðingamót innanhúss – sem er frábær undirbúningur fyrir þátttöku á Gæðingamóti og úrtöku fyrir komandi Landsmót. Mótið verður haldið fimmtudaginn 11.apríl nk.

Niðurstöður voru eftirfarandi :

Barnaflokkur T4
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Ásthildur V. Sigurvinsdóttir / Hrafn frá Eylandi 4,83
2 Una Björt Valgarðsdóttir / Hera frá Tungu 4,75
3 Ragnar Dagur Jóhannsson / Alúð frá Lundum II 4,58
4 Kristín Rut Jónsdóttir / Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ 4,46
5 Emilía Íris Ívarsd. Sampsted / Gefjun frá Bjargshóli 4,12
6 Elísabet Benediktsdóttir / Sólon frá Tungu 3,88
Unglingaflokkur T4
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Fanndís Helgadóttir / Ötull frá Narfastöðum 7,04
2 Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Kopar frá Álfhólum 6,38
3 Anika Hrund Ómarsdóttir / Afródíta frá Álfhólum 6,08
4 Selma Dóra Þorsteinsdóttir / Sigurdís frá Múla 5,50
5 Erla Rán Róbertsdóttir / Meitill frá Litla-Garði 5,38
6 Friðrik Snær Friðriksson / Fönix frá Reykjavík 5,04
Ungmennaflokkur T4
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir / Hrynjandi frá Kviku 6,21
2 Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir / Vörður frá Eskiholti II 5,96
3 Lilja Dögg Ágústsdóttir / Hviða frá Eldborg 5,79
4 Glódís Líf Gunnarsdóttir / Ræða frá Akureyri 5,08
5 Viktoría Brekkan / Darri frá Auðsholtshjáleigu 4,83
Barnaflokkur T7
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Bjartur frá Hlemmiskeiði 3 6,33
2 Valdís Mist Eyjólfsdóttir / Óskar frá Litla-Garði 6,17
3 Helga Rún Sigurðardóttir / Fannar frá Skíðbakka III 6,00
4-5 Alexander Þór Hjaltason / Harpa Dama frá Gunnarsholti 5,75
4-5 Oliver Sirén Matthíasson / Glæsir frá Traðarholti 5,75
6 Elísabet Emma Björnsdóttir / Moli frá Mið-Fossum 5,67
Barnaflokkur T3
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Kristín Rut Jónsdóttir / Roði frá Margrétarhofi 6,53
2 Una Björt Valgarðsdóttir / Agla frá Ási 2 6,29
3 Sigurður Ingvarsson / Ísak frá Laugamýri 5,99
4 Elísabet Benediktsdóttir / Glanni frá Hofi 5,49
5 Ásthildur V. Sigurvinsdóttir / Sigurey frá Flekkudal 5,33
Unglingaflokkur T3
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Elva Rún Jónsdóttir / Fluga frá Garðabæ 6,56
2 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Radíus frá Hofsstöðum 6,50
3 Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir / Astra frá Köldukinn 2 6,17
4-5 Bryndís Anna Gunnarsdóttir / Dreyri frá Hjaltastöðum 6,00
4-5 Selma Dóra Þorsteinsdóttir / Orka frá Búðum 6,00
6 Kamilla Hafdís Ketel / Dimmalimm frá Lækjarbakka 5,83
Ungmennaflokkur T3
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Guðný Dís Jónsdóttir / Pipar frá Ketilsstöðum 6,67
2 Glódís Líf Gunnarsdóttir / Garún frá Þjóðólfshaga 1 6,61
3 Lilja Dögg Ágústsdóttir / Nökkvi frá Litlu-Sandvík 6,44
4 Sigurður Dagur Eyjólfsson / Flugar frá Morastöðum 6,17
5 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir / Náttfari frá Enni 6,11
6 Þórdís Agla Jóhannsdóttir / Salvör frá Efri-Hömrum 5,72

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar