Dagskrá Tommamótsins
Tommamót Skeiðfélagsins verður haldið á laugardaginn á Brávöllum á Selfossi.
„Mótið er haldið til minningar um Tómas Ragnarsson hestamann. Rúmar eitthundrað skráningar bárust og var því hægt að halda mótið á einum degi. Einvala lið dómara dæmir mótið. Frítt kaffi og meðlæti í andyri Reiðhallar Sleipnismanna. Veðurspáin er góð og hvetjum við því alla hestaáhugamenn til að mæta og fylgjast með skemmtilegu móti. Ráslistar verða birtir eftir hádegi á morgun,“ segir í tilkynningu frá Skeiðfélaginu.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 10. september
kl. 10:00 fjórgangur
kl. 11:00 fimmgangur
kl. 13:00 hádegishlé
kl. 13:30 tölt
kl. 14:30 B úrslit fimmgangur
kl. 15:00 kaffihlé
kl. 15:30 250 m skeið
150 m skeið
100 m skeið
kl. 17:30 A úrslit fjórgangur
kl. 18:00 A úrslit fimmgangur
kl. 18:30 A úrslit tölt
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH