Íslandsmót „Díva er fasmikil og mjög skemmtilegt að ríða á henni“

  • 16. júlí 2023
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Eyvör Vaka vann barnaflokkinn á Íslandsmóti barna og unglinga

A úrslitum í barnaflokki gæðinga í boði Icelandic HorseWorld var að ljúka og voru það þær Eyvör Vaka Guðmundsdóttir og Díva frá Bakkakoti sem sigruðu með einkunnina 8.68.

„Mjög gaman. Díva er fasmikil og mjög skemmtilegt að ríða á henni en ég fékk hana lánaða hjá systur minni,“ segir Eyvör Vaka að vonum mjög ánægð með sigurinn. „Hún er mjög góð á tölti og er með mikið fasar og hentar vel í barnaflokkinn. Hún er líka ágæt á stökki,“ segir Eyvör aðspurð afverju hún hafi ákveðið að fara í barnaflokkinn.

Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

May be an image of 10 people, horse and text that says "ICELANDIC HORSEWORLD"

Niðurstöður – Barnaflokkur – A úrslit
1 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Díva frá Bakkakoti 8,68
2 Viktoría Huld Hannesdóttir / Þinur frá Enni 8,62
3 Hákon Þór Kristinsson / Magni frá Kaldbak 8,56
4 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Hljómur frá Nautabúi 8,52
5 Haukur Orri Bergmann Heiðarsson / Hnokki frá Reykhólum 8,51
6 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir / Auður frá Vestra-Fíflholti 8,49
7 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Radíus frá Hofsstöðum 8,45
8 Elimar Elvarsson / Karíus frá Strandarhjáleigu 8,38

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link