„Ég var sáttur með klárinn“.
Nú hafa tveir hestar komið í braut sem kepptu fyrir hönd Íslands á Heimsmeistaramótinu í Berlín, þeir Alur frá Lundum II og Arnar frá Blesastöðum II. Jakob S. Sigurðsson var knapi á Al en Agnar Snorri Stefánsson var á Arnari frá Blesastöðum II
Jakobi og Al gekk ágætlega en þeir hlutu 6,43 í einkunn og eru í 2. sæti sem stendur. Það gekk ekki eins vel hjá þeim Arnari og Agnari en Arnar fór á kýrstökk eftir fyrri sprettinni. Þeir hlutu 6,17 í einkunn og eru sem stendur í 7 sæti.
Aðspurður segist Jakob hafa verið ánægður með klárinn „Ég var sáttur með klárinn, ég bað reyndar um að ekki yrði klappað á meðan á sýningunni stæði en áhorfendur gátu ekki staðist mátið og klöppuðu á öllum gangi, meira segja á feti. Klárinn stressaðist svolítið upp við það áreiti en ég er bara sáttur“.
Niðurstöður eins og er:
1. Agnar Snorri Stefánsson Baldur vom Hrafnsholt 6,63
2. Jakob S. Sigurðsson Alur frá Lundum II 6,43
3. Eva-Karin Bengtsson Nör von Bucherbach 6,33
4. Anette Överaas Seimur frá Brædratungu 6,30
5. Þórður Þorgeirsson Fláki frá Blesastöðum 6,27
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH