Íslandsmót Egill og Hryggur bestir á slaka taumnum

  • 23. júlí 2022
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Niðurstöður úr b úrslitum í slaktaumatölti í ungmennaflokki á Íslandsmótinu

Það styttist í annann endann á þessum b úrslitadegi hér á Íslandsmótinu. Rétt í þessu voru að klárast b úrslit í slaktaumatölti í ungmennaflokki en þá eru þrenn úrslit eftir, í tölti í báðum flokkum og í slaktaumatölti í meistaraflokki.

Egill Már Þórsson vann b úrslitin í slaktaumatölti í ungmennaflokki á Hrygg frá Hryggstekk með 7,46 í einkunn. Hann átti bestu sýninguna á slaka taumnum og uppskar 7,67 í einkunn fyrir það atriði. Glódís Rún Sigurðardóttir á Breka frá Austurási voru efst fyrir slaka tauminn sem klikkaði aðeins hjá þeim og kostaði það þau sigurinn.

B úrslit – Slaktaumatölt – Niðurstöður – Ungmennaflokkur

6 Egill Már Þórsson Hryggur frá Hryggstekk Léttir 7,46
Tölt frjáls hraði 7,50 8,00 7,50 7,50 7,50
Hægt tölt 7,50 7,00 7,00 6,50 7,00
Tölt með slakan taum 7,50 8,00 7,00 8,00 7,50

7 Signý Sól Snorradóttir Rafn frá Melabergi Máni 7,12
Tölt frjáls hraði 7,00 8,00 7,50 7,50 7,00
Hægt tölt 7,50 6,50 7,00 7,00 6,50
Tölt með slakan taum 7,50 7,50 7,00 7,00 7,00

8 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Sleipnir 7,04
Tölt frjáls hraði 8,00 8,50 8,00 7,50 8,00
Hægt tölt 8,00 7,00 7,50 8,00 8,00
Tölt með slakan taum 7,00 5,50 5,00 7,00 6,00

9 Anna María Bjarnadóttir Birkir frá Fjalli Geysir 6,71
Tölt frjáls hraði 7,00 7,00 7,00 7,00 6,50
Hægt tölt 6,50 6,00 6,00 6,00 6,50
Tölt með slakan taum 6,50 7,00 6,00 7,00 7,00

10 Ólöf Bára Birgisdóttir Gnýfari frá Ríp Skagfirðingur 6,58
Tölt frjáls hraði 6,50 7,00 7,00 7,00 6,50
Hægt tölt 6,50 6,50 6,50 6,50 6,50
Tölt með slakan taum 6,00 6,50 6,50 6,50 7,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link