Einarsstaðamótið 11. – 12. ágúst
„Stórmót Þjálfa verður haldið á Einarsstöðum helgina 11. og 12. ágúst. Keppt verður í gæðingakeppni en boðið er upp á b flokk, a flokk, tölt og skeið. Einnig barna- unglinga- ungmenna og öldungaflokk.
Grill og kvöldvaka verður á sínum stað á laugardagskvöldinu. Miðaverð fyrir báða dagana er aðeins kr. 3000.- fyrir fullorðna en frítt fyrir krakka undir 14 ára og (h)eldri borgara 67 ára og eldri. Þeir sem kjósa að koma einungis á sunnudeginum greiða kr. 1500.- Hægt verður að fylgjast með dagskrá og ráslistum á heimasíðu félagsins: www.thjalfi.123.is en dagskráin mun liggja fyrir fljótlega.
Skráningar skal senda á netfangið: [email protected] fyrir kl. 22:00 miðvikud. 8. ágúst. Skráningar verða staðfestar. Við skráningu þarf eftirfarandi upplýsingar: Keppnisgrein, nafn knapa og hests, lit, aldur, föður og móður hests og eigandi. Nánari uppl. í síma 897 3030. Skráningargjald í tölt er kr. 2500.- og í skeið kr. 1000.- og skulu gjöldin greiðast inná reikning 1110-26-000138 kt. 480792-2549 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á [email protected]“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH