Einvígi framundan hjá Heklu og Johönnu
Það mun mæða mikið á Heklu Katharínu Kristinsdóttur og Gautreki frá Torfastöðum á eftir, því að eftir að allar afskráningar höfðu verið tilkynntar var ljóst að annað ungmenni, Johanna Beuk og Merkur von Birkenlund frá Þýskalandi, er komin með sæti í B-úrslitum í fjórgangi.
Sá knapi sem fær hærri lokaeinkunn í B-úrslitunum verður því heimsmeistari ungmenna í greininni.
Úrslitin hefjast kl. 11 að staðartíma (kl. 9 á Íslandi).
Áfram Hekla Katharína!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH