Kynbótasýningar Eitt hross með 10 fyrir skeið

  • 17. september 2023
  • Fréttir

Væta frá Leirulæk með sýnanda sínum Þorgeiri Ólafssyni

Tólf hross hlutu 9,5 fyrir skeið á árinu. 

Nú þegar kynbótasýningum árið 2023 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er skeið.

Eitt hross hlaut 10 fyrir skeið á árinu en það var hún Væta frá Leirulæk. Hlaut hún fyrir sköpulag 8,34 og fyrir hæfileika 8,42 sem gerir í aðaleinkunn 8,39. Væta er einungis fimm vetra og er hún fjórða hrossið sem hlotið hefur 10 fyrir skeið fimm vetra. Þau hross sem hlotið hafa 10 fyrir skeið fimm vetra eru: Númi frá Þóroddsstöðum (1998), Spuni frá Vesturkoti (2011) og Fröken frá Bessastöðum (2016). Væta er undan Konsert frá Hofi og Gnýpu frá Leirulæk en ræktandi og eigandi Vætu er Guðrún Sigurðardóttir. Væta var sýnd af Þorgeiri Ólafssyni.

Tólf hross hlutu 9,5 fyrir skeið á árinu.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir skeið á árinu

Nafn Uppruni í þgf. Dómsland Sýnandi
Glotta Torfabæ IS Elvar Þormarsson
Hildur Fákshólum IS Helga Una Björnsdóttir
Hraði Skovhuset DE Þórður Þorgeirsson
Keilir Myllulæk DE Eric Winkler
Kraftur Eystra-Fróðholti IS Árni Björn Pálsson
Kría Hvammi IS Helga Una Björnsdóttir
Melódía Horni I IS Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Mjallhvít Sumarliðabæ 2 IS Þorgeir Ólafsson
Saga Teland SE Steffi Svendsen
Seiður Hólum IS Konráð Valur Sveinsson
Sjafnar Skipaskaga IS Viðar Ingólfsson
Þokkadís Eystra-Fróðholti IS Daníel Gunnarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar