„Erfitt að fá styrktaraðila“
Skráningargjöld á Reykjavíkurmeistaramótið hafa komið væntanlegum keppendum í opna skjöldu, en þau hafa hækkað milli ára fyrir keppendur utan Fáks.
Skráningagjöld í ár voru 5.000 kr. fyrir ungmenni og fullorðna og 3.500 kr. fyrir börn og unglinga. Skuldlausir félagsmenn í Fáki fengu 1.000 kr. afslátt.
„Ástæðan fyrir hækkuninni er sú að það hefur gengið erfiðlega að fá stóra styrktaraðila,“ segir Jón Finnur Hansson framkvæmdarstjóri hestamannafélagsins Fáks sem stendur fyrir mótinu. „Við höfum fengið marga litla styrki en engin hefur verið tilbúin til að leggja fram stórar upphæðir. Því þurfum við að fara fram á að keppendur taki meiri þátt í útlögðum kostnaði. Skráningagjöldin eru að borga um 75% af útlögðum kostnaði við mótið, en þá er ekki reiknað með gjaldi fyrir aðstöðu eða ómældu vinnuframlagi sjálfboðaliða,“ segir Jón Finnur.
Skráningu á Reykjavíkurmeistaramótið lauk í gærkvöldi. Mótið hefur allra jafna verið með fjölmennari félagsmótum ársins – árið 2009 voru skráningar um 650 talsins. Skráningarnar í ár eru færri í ár, um 400 talsins, og telur Jón Finnur ástæðuna liggja í rysjóttu tíðarfari ásamt háum skráningagjöldum.
„Við höfum heyrt í knöpum sem hafa skráð færri hross en þeir upphaflega ætluðu sér vegna verðsins, en það eru aðallega hestar sem knapar ætluðu að prufa en ákváðu að bíða aðeins með það. Auk þess sjáum við fækkun keppenda utan Fáks. Undanfarin ár hefur hlutfall Fáksfélaga á mótinu verið um 50% en það horfir í að þeir verði sennilega í meirihluta í ár enda fengu skuldlausir félagar afslátt af skráningargjöldum,“ segir Jón Finnur.
Reykjavíkurmeistaramótið hefst eftir viku í Víðidal og stendur í fimm daga, 4. – 8. maí. Dagskráin er löng og viðmikil, en keppt verður í 27 mismunandi greinum og flokkum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH