Fimmgangssigurvegararnir Jakob, Védís, Henna, Ragnar og Bryndís
Myndir: Hestamannafélagið Sleipnir
Glæsilegur úrslitadagur var í dag á WR íþróttamóti Sleipnis. Keppt var til úrslita í tölti, slaktaumatölti, fjórgangi og fimmgangi.
Í fimmgangi F1 í meistaraflokki var sigurvegarinn Jakob Svavar Sigurðsson á Gleði frá Hólaborg en þau hlutu 7,45 í einkunn. Ungmennaflokkinn vann Védís Huld Sigurðardóttir á Hebu frá Íbishóli með 7,19 í einkunn.
Keppt var í fimmgangi F2 í 2. flokki en þann flokk vann Bryndís Arnarsdóttir á Teit frá Efri-Þverá en þau hlutu 5,98 í einkunn. Unglingaflokkinn vann Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson á Gylli frá Oddgeirshólum með einkunnina 6,45 og 1. flokkinn vann Henna Johanna Sirén á Hrönn frá Stóra-Múla með 6,55 í einkunn.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr fimmgangsúrslitum dagsins.
Niðurstöður A-úrslit F1 Fimmgangur Meistaraflokkur
1 Jakob Svavar Sigurðsson / Gleði frá Hólaborg 7,45
2 Ásmundur Ernir Snorrason / Ketill frá Hvolsvelli 7,33
3 Hans Þór Hilmarsson / Ölur frá Reykjavöllum 7,29
4 Viðar Ingólfsson / Vigri frá Bæ 7,19
5 Þórarinn Ragnarsson / Herkúles frá Vesturkoti 7,17
6 Arnhildur Helgadóttir / Svala frá Hjarðartúni 5,88
7 Ragnhildur Haraldsdóttir / Ísdís frá Árdal 5,74
Niðurstöður A-úrslit F2 Fimmgangur 1.flokkur
1 Henna Johanna Sirén / Hrönn frá Stóra-Múla 6,55
2 Katrín Eva Grétarsdóttir / Koltur frá Stóra-Bakka 6,45
3 Reynir Örn Pálmason / Aris frá Margrétarhofi 6,29
4 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Sproti frá Litla-Hofi 6,21
5 Matthías Leó Matthíasson / Vildís frá Auðsholtshjáleigu 5,62
6 Elín Árnadóttir / Krafla frá Vík í Mýrdal 4,67
Niðurstöður A-úrslit F2 Fimmgangur Unglingaflokkur
1 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson / Gyllir frá Oddgeirshólum 6,45
2 Hrafnhildur Svava Sigurðardóttir / Smyrill frá V-Stokkseyrarseli 6,36
3 Vigdís Anna Hjaltadóttir / Hlíf frá Strandarhjáleigu 5,45
4 Elsa Kristín Grétarsdóttir / Spurning frá Sólvangi 5,43
5 Kristín Karlsdóttir / Garðar frá Ljósafossi 5,12
6 Ragnar Snær Viðarsson / Mói frá Árbæjarhjáleigu II 4,31
Niðurstöður A-úrslit F2 Fimmgangur 2.flokkur
1 Bryndís Arnarsdóttir / Teitur frá Efri-Þverá 5,98
2 Theódóra Þorvaldsdóttir / Snædís frá Forsæti II 5,81
3 Orri Arnarson / Bera frá Leirubakka 5,79
4 Steingrímur Jónsson / Snæbjört frá Austurkoti 4,98
5 Jóhannes Óli Kjartansson / Ófeigur frá Selfossi 4,88
6 Nadine Stehle / Hreyfing frá Syðra-Langholti 3,55
Niðurstöður A-úrslit F1 Fimmgangur Ungmennaflokkur
1 Védís Huld Sigurðardóttir / Heba frá Íbishóli 7,19
2 Jón Ársæll Bergmann / Harpa frá Höskuldsstöðum 7,10
3 Þórey Þula Helgadóttir / Kjalar frá Hvammi I 6,69
4 Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Jarlhetta frá Torfastöðum 6,57
5 Emilie Victoria Bönström / Hlekkur frá Saurbæ 6,55
6 Herdís Björg Jóhannsdóttir / Skorri frá Vöðlum 6,45
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH