Fimmtán hross hlutu 9,5 fyrir tölt
Nala frá Varmá hlaut 9,5 fyrir tölt, 4.vetra gömul. Janus Halldór sýndi hryssuna, myndin er tekin á Landssýningu kynbótahrossa. Ljósmynd/Gísli Guðjónsson
Alls hlutu fimmtán hross einkunnina 9,5 fyrir tölt í ár hér á landi. Meðalaldur þessara hrossa er 6,46 ár. Af þessum fimmtán hrossum eru fjórir stóðhestar. Sjö þeirra hlutu einkunnina á vorsýningu, þrjú á miðsumarssýningu og fimm á siðsumarssýningu.
Ræktunarbúið að Þjórsárbakka á tvær hryssur í þessum hópi þær Auðlind og Rjúpu en báðar eru þær útaf gæðingamóðurinni Eldingu frá Hóli. Teitur Árnason sýndi fjögur þessara hrossa áðurnefndar hryssur frá Þjórsárbakka, Vonanda frá Halakoti og Heiður frá Eystra-Fróðholti.
Árni Björn Pálsson er sýnandi að tveimur hrossum sem 9,5 hlutu fyrir tölt en það eru Elva frá Auðsholtshjáleigu og Sólfaxi frá Herríðarhóli.
Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir tölt.
| Nafn | Uppruni í þgf. | Sýnandi |
| Auðlind | Þjórsárbakka | Teitur Árnason |
| Elva | Auðsholtshjáleigu | Árni Björn Pálsson |
| Fluga | Hrafnagili | Helga Una Björnsdóttir |
| Happadís | Strandarhöfði | Ásmundur Ernir Snorrason |
| Heiður | Eystra-Fróðholti | Teitur Árnason |
| Heilun | Holtabrún | Elvar Þormarsson |
| Nala | Varmá | Janus Halldór Eiríksson |
| Rjúpa | Þjórsárbakka | Teitur Árnason |
| Sandra Líf | Álfhólum | Sara Ástþórsdóttir |
| Sólfaxi | Herríðarhóli | Árni Björn Pálsson |
| Staka | Hólum | Mette Camilla Moe Mannseth |
| Toppa | Gröf | Flosi Ólafsson |
| Vonandi | Halakoti | Teitur Árnason |
| Þrá | Prestsbæ | Þórarinn Eymundsson |
| Özur | Ásmundarstöðum 3 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum