Fjölbreytt viðfangsefni heimsmeistarans
Þrátt fyrir ungan aldur er hún er einn sigursælasti knapi í íslenskum hestaíþróttum og er ríkandi heimsmeistari í fjórgangi. Tími hennar fer þó síst í markvissa uppbyggingu keppnishrossa, því þeir verða að bíða fram á kvöld. Á daginn starfrækir hún eitt stærsta Íslandshestabú í Þýskalandi, Kronshof.
,,Ég heillast af fjölbreytileika íslenska hestsins, bæði í kostum og karakterum. Einstaklingarnir geta verið svo ólíkir viðfangs sem og í umgengni. Það er gaman að vinna með ganghæfninni. Stundum þarf vinnu til að ná í gegn á meðan önnur eru aðgengilegri. Mér finnst gaman að takast á við ólík viðfangsefni og leitast eftir því í ræktun að búa til fjölbreytt gæðahross.“
Frauke Schenzel fæddist svo að segja inn í íslandshestamennskuna. Faðir hennar Lothar Schenzel var einn af þeim fyrstu sem flutti íslenska hestinn til Þýskalands. Þriggja ára var Frauke farinn á hestbak og hún tók þátt í fyrsta mótinu aðeins sex ára.
Eiðfaxi fékk að kynnast lífi og starfi Frauke Schenzel og má nálgast greinina í 5. tbl. Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH