Fjörgammar og glæstir fákar
Mikið var um dýrðir í Top Reiter höllinni sl. laugardagskvöld þegar stórsýningin Fákar og fjör fór fram.
Komu þar fram fallegir gæðingar, ræktunarbú af Norðurlandi sýndu gripi sína, ungir ofurhugar spreyttu sig í hindrunarstökki, skeiðgammar þeystu gegnum höllina og rekstrarfélagið með Reyni Hjartason í broddi fylkingar stálu senunni með örtamningu.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Þórir Tryggvason tók af sjónarspilinu og enn fleiri má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands