Folaldasýning hjá Adam í Kjós

  • 18. nóvember 2011
  • Fréttir
Folaldasýning hjá Adam í Kjós

Fjölbreytt dagskrá er framundan hjá hestamannafélaginu Adam. 

 
Félagið mun m.a. standa að sinni árlegu folaldasýningu kl. 13:30 þann 4. desember í Boganum að Þúfu.
 
„Verðlaunuð verða 5 efstu folöld í hvorum flokki, auk glæsilegasta folaldsins í eigu Adamsfélaga. Skráningargjald kr. 1500 fyrir hvert folald. Þátttakendur eru beðnir um að hafa skráningargjald tiltækt á staðnum.  Skrá þarf folöldin í síðasta lagi 2. desember.  Skráningar sendast  á [email protected]    þar sem fram kemur IS númer folalds. Ef ekki er búið að skrá folald þurfa upplýsingar um nafn föður, móður, lit og uppruna að koma fram.  Þeir sem ekki hafa möguleika á að senda tölvupóst geta hringt inn skráningu í síma 895-7745. Dómari verður einn stærsti kynbótadómari landsins; Þorvaldur Kristjánsson. Heitt verður á könnunni , piparkökur og  gaman.  Áhorfendur meira en velkomnir. Nánari upplýsingar um félagsstarfið hjá Adam má sjá á www.kjos.is,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórn félagsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link