Folaldasýning Sörla 18.mars – takið daginn frá !

  • 6. mars 2023
  • Tilkynning

Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 18.mars næstkomandi á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Sýningin hefst kl.13 og dæmt verður í flokki hestfolalda og merfolalda. Efstu 5 folöldin í hverjum flokki keppa til úrslita og folald sýningarinnar fær Þjórsárbakkabikarinn glæsilega.

Sýningin hefst kl.13:00, í hléi verður uppboð á frábærum folatollum og veitingasala er á staðnum.
Folaldasýningin er opin öllum og skráning fer fram í gegnum netfangið topphross(hja)gmail.com.
Við skráningu þarf að koma fram nafn folalds, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi.
Skráningargjald er 2500 kr, millifært á reikning 0545-26-3615, kt.640269-6509, senda kvittun á topphross(hja)gmail.com með nafni folalds sem skýringu.

Vonumst til að sjá sem flesta !

Kynbótanefnd Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar