Forkeppni lokið á WR Hólamótinu
Verðlaunahafar í 100m. skeiðinu á WR Hólamótinu en Mette Mannseth vann á Vivaldi frá Torfunesi. Mynd: Hestamannafélagið Skagfirðingur
WR Hólamót, UMSS og hestamannafélagsins Skagfirðings fer fram nú um helgina. Nú er forkeppni lokið á mótinu en á morgun fer fram keppni í A úrslitum og hefjast úrslit kl. 9 í fyrramálið á keppni í fimmgangi í unglingaflokki.
Í kvöld fór fram keppni í 100m. skeiði en góðir tímar náðust í skeiðinu. Mette Mannseth vann á Vivaldi frá Torfunesi en þau fóru 100 metrana á 7,50 sek. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri voru með sama tíma en lakari seinni sprett. Finnbogi Bjarnason endaði þriðji á Stolt frá Laugavöllum með tímann 7,68 sek.
Mette Mannseth leiðir tölt T1 og fjórgang V1 í meistaraflokki á Skálmöld frá Þúfum með einkunnina 7,57 í tölti og 7,40 í fjórgang. Hún stendur einnig efst eftir forkeppni í slaktaumatölti T2 á Blundi frá Þúfum með 7,63 í einkunn. Bjarna Jónasson stendur efstur í fimmgangi F1 í meistaraflokki á Hörpu Sjöfn frá Hvolsvelli en þau hlutu 7,43 í einkunn.
HÉR eru hægt að sjá niðurstöður mótsins
Tvær umferðir eru í kappreiðunum, fyrri umferðin var riðin á föstudag en eftir hana er Þórarinn Eymundsson efstur í 150m. skeiðinu á Gullbrá frá Lóni en þau fóru á tímanum 14,70 sek. Í 250m. skeiðinu er Daníel Gunnarsson efstur á Einingu frá Einhamri 2 með tímann 22,87 sek.
Sunnudagur – A úrslit
— 9:00 —
F2 Unglingaflokkur
F2 2.flokkur
F1 Ungmennaflokkur
F1 Meistaraflokkur
10 mín hlé
V1 Ungmennaflokkur
V1 Meistaraflokkur
— 13:00 —
V1 Unglingaflokkur
V2 Barnaflokkur
V5 2.flokkur
T4 Unglingaflokkur
10 mín hlé
T2 Ungmennaflokkur
T2 Meistaraflokkur
T3 Barnaflokkur
T7 2.flokkur
T1 Unglingaflokkur
T1 Ungmennaflokkur
T1 Meistaraflokkur
Hlé
— 19:30 —
PP1 Ungmennaflokkur
PP1 Fullorðinsflokkur
Hlé
250m skeið
150m skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH