Frábærir tímar í skeiði

  • 10. október 2019
  • Fréttir

Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II.

Hvaða knapar og hestar voru fljótastir í ár hér á landi?

Keppni í skeiðgreinum nýtur sívaxandi vinsælda, bæði meðal áhorfenda og keppenda. Hér á landi er mikið til af fljótum og öruggum skeiðhestum og á hverju tímabili koma fram nýjir og efnilegir hestar sem og knapar. Árið í ár var enginn undantekning. Hér má sjá stöðulista í skeiðgreinum hér á landi.

Það verður þó að taka það fram að stöðulistarnir eru birtir með fyrirvara um það að mótshaldarar hafi skilað af sér öllum þeim mótum sem fram fóru á Íslandi og eru þetta því þær upplýsingar sem liggja fyrir í Worldfeng að svo stöddu.

250 metra skeið

Lengsta vegalengd skeiðgreinanna er 250 metra skeið og þurfa hestar í henni að búa yfir úthaldi og snerpu til þess að ná góðum tímum. Hér á landi fóru alls níu hestar undir 23 sekúndum sem telst góður árangur. Fljótastur í ár var Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II á tímanum 21,42 sekúndur, knapi á honum Konráð Valur Sveinsson. Heimsmeistararnir í þessari vegalengd, Glúmur frá Þóroddsstöðum og Guðmundur Björgvinsson, koma næstir en besti tími þeirra hér á landi eru 21,74 sekúndur. Sigurbjörn Bárðarson og Vökull frá Tunguhálsi runnu 250 metranna á 21,77 sekúndum og eiga þriðja besta tíma ársins. Það vekur athygli að Gústaf Ásgeir Hinriksson er með tvö hross á þessum lista, þau Rangá frá Torfunesi og Andra frá Lynghaga.

250 metra skeið    
Nafn Hestur Tími
Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 21,42
Guðmundur Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum 21,74
Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 21,77
Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 22,03
Finnur Jóhannesson Tinna Svört frá Glæsibæ 22,27
Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 22,49
Gústaf Ásgeir Hinriksson Andri frá Lynghaga 22,53
Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi 22,94
Sigurður Vignir Matthíasson Líf frá Framnesi 22,99

150 metra skeið

150 metra skeið er skemmtileg grein þar sem reynir á snerpu og tækni knapa og hests. Alls fóru 16 hestar á tímanum 15 sekúndur eða minna. Íslandsmeistarinn í greininni, Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni, eiga besta tíma ársins hér á landi en sá tími er 14,10 sekúndur. Árni Björn Pálsson og Korka frá Steinnesi eiga næst besta tíma ársins og er hann 14,31 sekúnda þá er það Sigurður V. Matthíasson og Léttir frá Eiríksstöðum sem eiga þriðja besta tímann, 14,36 sekúndur.

150 metra skeið    
Knapi Hross Tími
Þórarinn Eymundsson Gullbrá frá Lóni 14,10
Árni Björn Pálsson Korka frá Steinnesi 14,31
Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum 14,36
Glódís Rún Sigurðardóttir Blikka frá Þóroddsstöðum 14,45
Þórarinn Ragnarsson Funi frá Hofi 14,52
Reynir Örn Pálmason Skemill frá Dalvík 14,72
Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum 14,73
Davíð Jónsson Glóra frá Skógskoti 14,74
Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi 14,75
Bjarni Bjarnason Þröm frá Þóroddsstöðum 14,75
Árni Björn Pálsson Seiður frá Hlíðarbergi 14,88
Trausti Óskarsson Skúta frá Skák 14,90
Hinrik Bragason Hrafnhetta frá Hvannstóði 14,91
Hanna Rún Ingibergsdóttir Birta frá Suður-Nýjabæ 14,92
Sigurbjörn Bárðarson Hvanndal frá Oddhóli 14,93
Hlynur Guðmundsson Klaustri frá Hraunbæ 14,95

100 metra skeið

Samkvæmt stöðulistanum að þá eru það alls fjórtán hestar sem skeiðuðu 100 metrana á 7,60 sekúndum eða minna. Það verður að teljast frábær árangur og til marks um þá breiðu flóru sem er í skeiðhestavali. Konráð Valur Sveinsson á tvo bestu tíma ársins en fljótastur var hann á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II og er best tími þeirra í ár 7,22 sekúndur. Hann varð heimsmeistari í greininni á Losta frá Ekru en besti tími þeirra hér á landi var 7,30 sekúndur og er það besti tími ársins. Þá átti Jóhann Magnússon frábært ár á Fröken frá Bessastöðum sem er einnig úr ræktun hans en skv stöðulistum er besti tími þeirra 7,33 sekúndur í ár.

100 metra skeið    
Knapi Hestur Tími
Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,22
Konráð Valur Sveinsson Losti frá Ekru 7,30
Jóhann Magnússon Fröken frá Bessastöðum 7,33
Guðmundur Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum 7,35
Þórarinn Eymundsson Gullbrá frá Lóni 7,42
Ásmundur Ernir Snorrason Fáfnir frá Efri-Rauðalæk 7,45
Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 7,48
Sæmundur Þ. Sæmundsson Seyður frá Gýgjarhóli 7,49
Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 7,53
Finnur Jóhannesson Tinna Svört frá Glæsibæ 7,57
Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 7,57
Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni 7,59
Hinrik Bragason Drottning frá Hömrum II 7,59
Friðrik Reynisson Seiður frá Hlíðarbergi 7,60

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link