Frí reiðkennsla á miðvikudagskvöldum hjá Fáki
Eins og undanfarin ár þá hefur Fákur boðið upp á reiðkennslu á miðvikudagskvöldum, frá kl. 20:00 – 22:00 í Reiðhöllinni…
Þá er reiðkennari á vegum félagsins staddur í Reiðhöllinni og leiðbeinir þeim sem vilja og er þjónustan frí fyrir skuldlausa félagsmenn. Stefnt er að því að öll miðvikudagskvöld fram í aprílbyrjun verði reiðkennari á vegum félagsins (ef ekki fæst reiðkennari þá verður það auglýst á Fáksvefnum, svo menn komi ekki að tómum kofanum).
Sif Jónsdóttir ríður á vaðið í ár og leiðbeinir þeim sem vilja í kvöld, svo það er um að gera að nota þessa góðu þjónustu og reyna bæta sína reiðmennsku því lengi má gott bæta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH