Gæðingamót Trausta
Gæðingakeppni Hestamannafélagsins Trausta verður haldin á Þorkelsvelli við Laugarvatn laugardaginn 23. júlí n.k. Keppt verður í öllum aldursflokkum ásamt A og B flokki gæðinga.
Keppt verður tölti T3 ef þátttaka verður næg. Mótið hefst kl. 11:00 með setningu formanns og verður dagskrá eftirfarandi:
11:10 B-flokkur gæðinga.
A-flokkur gæðinga.
Matarhlé
Barnaflokkur
Unglingaflokkur/ungmennaflokkur
Töltkeppni.
Hlé
Úrslit
-Börn
-Unglingar/ungmenni
-A/B flokkur
-Tölt
Knapi og hestur mótsins valinn.
ATH. Tímasetningar eru háðar skráningu í flokkana, en mótið verður sett kl 11 og fyrsta grein hefst 11:10
Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 18. júlí fyrir kl. 22:00 á netfangið [email protected]
Í skráningu verður að koma fram nafn og kennitala knapa og IS númer á hesti. Skráningargjald er 2000kr á hest í hverri grein.Frekari upplýsingar verður að finna inná heimasíðu Trausta, http://trausti.123.is/ og á Facebook síðunni þegar nær dregur.
Kveðja, Stjórn Trausta og Mótanefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH