Gaman saman á melunum um Versló
Ljósmynd: Facebooksíða Léttis
Um verslunarmannahelgina ætla hestamannafélögin Funi og Léttir að halda sameiginlega gæðingakeppni á Melgerðismelum í Eyjafirði.
Ásamt hefðbundinni gæðingakeppni eru hugmyndir um að standsetja gömlu kynbótabrautina fyrir kappreiðar (þessi sem liggur austur vestur).
Svo er Trec brautin á sínum stað og reiðleiðirnar af betri gerðinni!
Hvetjum alla til að taka helgina frá og koma í útilegu á melana. Höfum gaman saman.
Nánar auglýst fljótlega.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH