Glens og gaman á Uppskerunni

  • 6. nóvember 2012
  • Fréttir
Glens og gaman á Uppskerunni

„Það styttist í hátíð hátíðanna í hestamennskunni því Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á Broadway á laugardagskvöldið kemur, þann 10. nóvember.

Miðasalan er í fullum gangi á Broadway (533 1100) og spennan fyrir valinu á knöpum ársins að ná hámarki. Okkar glæsilegu íþróttamenn hljóta eftirtalin verðlaun á hátíðinni:
 
Efnilegasti knapi ársins
Skeiðknapi ársins
Íþróttaknapi ársins
Gæðingaknapi ársins
Kynbótaknapi ársins
Knapi ársins
Heiðursverðlaun LH
Ræktun keppnishesta
Gísli Einarsson fréttamaður og ritstjóri Landans mun fara með veislustjórnina, Ingó veðurguð mætir með gítarinn og hljómsveitin Von ásamt Magna Ásgeirssyni mun halda uppi fjörinu á ballinu.
 
Matseðillinn
Forréttur: Laxatartar með pestó & brauði
Aðalréttur: Ofnbakaður lambavöðvi með rótargrænmeti, rösti kartöflum & villisveppasósu
Eftirréttur: Frönsk súkkulaðikaka með karamellukremi & rjóma
Verð á hátíðina, matur og ball er kr. 8.200 en stakur miði á ballið kostar kr. 2.500.
 
Nú er tækifærið til að hittast, gleðjast saman og fagna góðum árangri ársins 2012!“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link