Guðmundur og Randalín sigursæl
Töltkeppni KEA mótaraðar fór fram í Top Reiter höllinni á Akureyri í kvöld.
Hin fagurskjótta Randalín frá Efri-Rauðalæk og Guðmundur Karl Tryggvason knapi hennar og eigandi voru stjörnur kvöldsins á töltkeppni KEA mótaraðar sem fram fór í Top Reiter höllinni í kvöld. Þessi mikla töltmylla hefur átt velgengni að fagna á mótum norðan heiða í vetur. Leiddu þau keppnina frá upphafi og hlutu í lokaeinkunn 7,44.
Jafnir í 2.-3. sæti voru ræktandi Randalínar, Baldvin Ari Guðlaugsson á Senjor frá Syðri-Ey og Viðar Bragason á Björg frá Björgum, með 7,28. Þau síðarnefndu höfðu áður sigrað B-úrslit mótsins og var lukkan á bandi Viðars þegar varpað var hlutkesti, hann gekk af braut með silfur um hálsinn. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir á Evelyn frá Litla-Garði var fjórða og Líney María Hjálmarsdóttir á Vökul frá Úlfsstöðum fimmta.
Meðfylgjandi eru myndir frá mótinu sem Þórir Tryggvason tók.
Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi.
A úrslit
- Guðmundur Karl Tryggvason / Randalín frá Efri-Rauðalæk 7,44
- Viðar Bragason / Björg frá Björgum 7,28 H
- Baldvin Ari Guðlaugsson / Senjor frá Syðri-Ey 7,28 H
- Ásdís Helga Sigursteinsdóttir / Evelyn frá Litla-Garði 6,67
- Líney María Hjálmarsdóttir / Vökull frá Úlfsstöðum 6,56
B úrslit
- Viðar Bragason / Björg frá Björgum 6,94
- Stefán Birgir Stefánsson / Gletting frá Árgerði 6,33
- Stefán Friðgeirsson / Dagur frá Strandarhöfði 6,28 H
- Þorvar Þorsteinsson / Einir frá Ytri-Bægisá I 6,28 H
- Atli Sigfússon / Krummi frá Egilsá 6,22
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH