Gustarar ráða sér varla af kæti

  • 12. janúar 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Kraftur í uppbyggingu í nýja hesthúsahverfinu

Allar lóðir sem í boði voru í nýju hesthúsahverfi Gusts á Kjóavöllum, um fimmtíu talsins, eru seldar. Nýja svæðið er á milli Heimsenda og Andvarasvæðisins. Bygging er hafin á flestum lóðunum og á þriðja tug húsa eru komin í notkun. Allt að tíu hús hafa verið flutt í heilu lagi frá gamla svæðinu og yfir á það nýja. Tvær reiðskemmur í eigu einkaaðila eru í byggingu á svæðinu og fyrsta skóflustungan hefur verið tekin að reiðhöll í fullri stærð sem byggð verður á vegum Kópavogsbæjar. Gert er ráð fyrir að hún verði tekin í notkun árið 2012 og fullbúin 2014. Mikill hugur er í Gusturum sem ráða sér varla af kæti á víðáttumiklum reiðleiðum í nágrenni nýja hverfisins. Starfsstöð Gusts verður þó á gamla svæðinu í vetur, sem verður sá síðasti sem hross verða þar á húsi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link