Hæst dæmdu hross ársins
Viðar frá Skör, knapi Helga Una Björnsdóttir Mynd: Nicki Pfau
Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir árið og skoða helstu afrek. Búið er að fara yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum hér á vef Eiðfaxa og nú ætlum við að skoða hæst dæmdu hross ársins.
Hæst dæmda hross ársins er Viðar frá Skör en hann setti heimsmet í vor þegar hann hlaut 9.04 í aðaleinkunn. Viðar er undan Hrannari frá Flugumýri og Vár frá Auðsholtshjáleigu. Annar er Sindri frá Hjarðartúni, sem setti heimsmet í hæstu hæfileikaeinkunn á Landsmótinu í sumar, en hann er með 8.99 í aðaleinkunn. Sindri er undan Stála frá Kjarri og Döguni frá Hjarðartúni. Þriðja er síðan Álfamær frá Prestsbæ sem hlaut 8,87 í aðaleinkunn í vor en hún er undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ.
Þegar rýnt er yfir listann má sjá að Konsert frá Hofi á þar tvo fulltrúa, Dívu frá Austurási (8.77) og Ganda frá Rauðalæk (8.72) og Sleipnisbikarhafinn á Landsmótinu í sumar, Sjóður frá Kirkjubæ, á þar líka tvo fulltrúa; Seðil frá Árbæ (8.75) og Þyrnirós frá Rauðalæk (8.67).
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þrjá lista; 10 hæst dæmdu hross ársins, 10 hæst dæmdu hryssurnar og 10 hæst dæmdu stóðhestana.
Tíu hæst dæmdu hross ársins
| Hross | Uppruni í þgf. | Sýnandi | Ae. | Aldur | Faðir | Móðir |
| Viðar | Skör | Helga Una Björnsdóttir | 9.04 | 8 vetra | Hrannar frá Flugumýri II | Vár frá Auðsholtshjáleigu |
| Sindri | Hjarðartúni | Hans Þór Hilmarsson | 8.99 | 7 vetra | Stáli frá Kjarri | Dögun frá Hjarðartúni |
| Álfamær | Prestsbæ | Árni Björn Pálsson | 8.87 | 7 vetra | Spuni frá Vesturkoti | Þóra frá Prestsbæ |
| Díva | Austurási | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | 8.77 | 6 vetra | Konsert frá Hofi | Prinsessa frá Litla-Dunhaga I |
| Salka | Efri-Brú | Árni Björn Pálsson | 8.76 | 6 vetra | Vökull frá Efri-Brú | Vaka frá Efri-Brú |
| Seðill | Árbæ | Árni Björn Pálsson | 8.75 | 7 vetra | Sjóður frá Kirkjubæ | Veona frá Árbæ |
| Gandi | Rauðalæk | Guðmundur Friðrik Björgvinsson | 8.72 | 7 vetra | Konsert frá Hofi | Grain frá Árbæ |
| Hannibal | Þúfum | Mette Camilla Moe Mannseth | 8.68 | 7 vetra | Stjörnustæll frá Dalvík | Grýla frá Þúfum |
| Þyrnirós | Rauðalæk | Guðmundur Friðrik Björgvinsson | 8.67 | 7 vetra | Sjóður frá Kirkjubæ | Logadís frá Syðra-Garðshorni |
| Lýdía | Eystri-Hól | Árni Björn Pálsson | 8.65 | 7 vetra | Lexus frá Vatnsleysu | Oktavía frá Feti |
Tíu hæst dæmdu stóðhestar ársins

| Skarpur | Kýrholti | Jakob Svavar Sigurðsson | 8.63 | 7 vetra | Skýr frá Skálakoti | Skrugga frá Kýrholti |
| Seiður | Hólum | Konráð Valur Sveinsson | 8.60 | 7 vetra | Trymbill frá Stóra-Ási | Ösp frá Hólum |
| Vigri | Bæ | Viðar Ingólfsson | 8.59 | 7 vetra | Arion frá Eystra-Fróðholti | Þrift frá Hólum |
| Fróði | Flugumýri | Eyrún Ýr Pálsdóttir | 8.57 | 5 vetra | Hringur frá Gunnarsstöðum I | Fýsn frá Feti |
| Hilmir | Árbæjarhjáleigu II | Jakob Svavar Sigurðsson | 8.57 | 7 vetra | Spuni frá Vesturkoti | Elding frá Árbæjarhjáleigu II |
Tíu hæst dæmdu hryssur ársins
| Hross | Uppruni í þgf. | Sýnandi | Ae. | Aldur | Faðir | Móðir |
| Álfamær | Prestsbæ | Árni Björn Pálsson | 8.87 | 7 vetra | Spuni frá Vesturkoti | Þóra frá Prestsbæ |
| Díva | Austurási | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | 8.77 | 6 vetra | Konsert frá Hofi | Prinsessa frá Litla-Dunhaga I |
| Salka | Efri-Brú | Árni Björn Pálsson | 8.76 | 6 vetra | Vökull frá Efri-Brú | Vaka frá Efri-Brú |
| Þyrnirós | Rauðalæk | Guðmundur Friðrik Björgvinsson | 8.67 | 7 vetra | Sjóður frá Kirkjubæ | Logadís frá Syðra-Garðshorni |
| Lýdía | Eystri-Hól | Árni Björn Pálsson | 8.65 | 7 vetra | Lexus frá Vatnsleysu | Oktavía frá Feti |
| Kastanía | Kvistum | Árni Björn Pálsson | 8.64 | 7 vetra | Ómur frá Kvistum | Katla frá Skíðbakka III |
| Dögun | Austurási | Árni Björn Pálsson | 8.64 | 6 vetra | Hákon frá Ragnheiðarstöðum | Ör frá Strönd II |
| Auðlind | Þjórsárbakka | Teitur Árnason | 8.64 | 7 vetra | Loki frá Selfossi | Gola frá Þjórsárbakka |
| Anastasía | Svarfholti | Árni Björn Pálsson | 8.62 | 7 vetra | Arður frá Brautarholti | Bylgja frá Einhamri 2 |
| Sögn | Skipaskaga | Helga Una Björnsdóttir | 8.62 | 6 vetra | Skaginn frá Skipaskaga | Saga frá Skipaskaga |
| Telma | Árbakka | Hinrik Bragason | 8.62 | 8 vetra | Framherji frá Flagbjarnarholti | Embla frá Oddgeirshólum |
| Gleði | Hólaborg | Þorgeir Ólafsson | 8.62 | 6 vetra | Forseti frá Vorsabæ II | Hamingja frá Hæli |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH