Hart á hrossum

  • 12. desember 2019
  • Fréttir
Skilaboð frá Matvælastofnun

Matvælastofnun brýnir fyrir hrossaeigendum að koma heyi í útiganghross og huga vel að ástandi þeirra nú þegar rofað hefur til víða um land. Frosthörkur í kjölfar norðan áhlaups kallar á aukið eftirlit og umhirðu með hrossum á útigangi. Nauðsynlegt getur verið að moka leið að hrossum til að koma til þeirra heyi þar sem skaflar eru miklir. Hross á útigangi þurfa að vera í ríflegum holdum á þessum árstíma.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar