Hólaskóli auglýsir eftir tamningahrossum

  • 18. ágúst 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Námi í tamningum skipt í þrennt

Hólaskóli hefur til margra ára tekið hross í tamningu fyrir hrossabændur. Það eru nemendur skólans sem annast tamninguna undir handleiðslu kennara. Í haust verða gerðar breytingar á tamninganáminu á öðru ári með það að markmiði að gera kennsluna og tamningarnar markvissari og árangursríkari.

Í stað tveggja námskeiða í tamningu og þjálfun verða þau nú þrjú: For-og frumtamning, Grunnþjálfun, og Þjálfun. Þar með fjölgar valkostum þeirra sem vilja koma ungum hrossum í tamningu og þjálfun, allt eftir því á hvaða tamningastigi þau eru.

Gjjaldið fyrir allt viðkomandi tímabil er 50 – 60 þúsund krónur og ber ekki virðisaukaskatt. Frekari upplýsingar um skráningu og tímasetningar á skilum hrossa í tamingu er að finna á vef Hólaskóla HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link