Hrossaræktarfundir – Fundir víða um land í vikunni!

  • 2. mars 2020
  • Fréttir

Fundir um málefni hrossaræktarinnar eru farnir af stað en Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur eru á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin eru fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

  • Nýtt ræktunarmarkmið í hrossarækt
  • Dómskalinn – þróun og betrumbætur
  • Nýjir vægistuðlar eiginleikanna
  • Málefni og starf Félags hrossabænda

Eins og sjá má er margt áhugavert til umræðu.

Fundirnir sem eftir eru verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

2.mars mánudagur Suðurland – reiðhöllin á Hellu kl. 20:00

5.mars fimmtudagur Ljósvetningabúð kl. 20:00.

6.mars föstudagur Skagafjörður – Tjarnarbær kl. 20:00.

10.mars þriðjudagur Vestur-Húnavatnssýsla – Gauksmýri kl. 20:00.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link