Hryssa synti út í Lundey og aftur til baka

  • 5. júní 2023
  • Fréttir

Hryssan á leið í land. Myndir Jón Sigurjónsson.

Talið er að hryssan hafi verið í hestalátum og verið í graðhestaleit.

Hryssa synti út í Lundey í Skagafirði og aftur í land en þessu greinir Feykir frá. Talið er að hryssan hafi verið í hestalátum og verið í graðhestaleit.

Hryssan var í hólfi í Garði í Hegranesi og telur Jón Sigurjónsson að hún hafi ætlað yfir Austari-Héraðsvötnin og í Vatnsleysu. Straumurinn hefur verið það sterkur að hann hefur hrifsað hana með sér til sjávar, hryssan farið á sund og tekið land í Lundey sem er um 2-3 km. frá landi. Hún stoppaði ekki lengi í eynni áður en hún synti í land upp í fjöru í Garðssandi.

Landtaka í Lundey

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link