Hvað kom undan þeim?

  • 18. desember 2022
  • Fréttir

Safír frá Hjarðartúni

Landsmótstjörnur árið 2016

Í 9. tölublaði Eiðfaxa árið 2016 birtist grein með yfirskriftinni Landsmótsstjörnur fá nýtt hlutverk. Þar var fjallað um stjörnur Landsmótsins og undir hvaða stóðhest þær fóru.

Hryssurnar sem fjallað var um voru þær Jörð frá Koltursey en henni var haldið undir Lexus frá Vatnsleysu, Sara frá Stóra-Vatnsskarði en hún fór undir Ský frá Skálakoti og Stefna frá Torfunesi sem fór undir Korg frá Ingólfshvoli. Stefna og Jörð stóðu efstar í sínum flokkum, Stefna fjögurra vetra og Jörð sex vetra.

Þessi afkvæmi ættu að vera fimm vetra í dag og því gaman að skoða hvort eitthvað af þeim hafi skilað sér á kynbótabrautina. Stefna á nú þegar orðið sex afkvæmi en í sumar fæddist undan henni og Drang frá Steinnesi, hryssa, Kyrrð frá Torfunesi. Ekkert af afkvæmum Stefnu hefur verið sýnt en Stefnu var haldið í sumar undir Hannibal frá Þúfum.

Undan Jörð og Lexusi kom hryssan Hel frá Koltursey en hún hefur ekki verið sýnd. Undan Jörð eru til fimm afkvæmi og var henni haldið undir Ský frá Skálakoti í sumar.

Undan Söru og Ský kom Safír frá Hjarðartúni en sumir muna eflaust eftir honum á Landsmótinu í sumar þar sem hann var sýndur í flokki fimm vetra stóðhesta. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,09, fyrir hæfileika 8,22 og í aðaleinkunn 8,17. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt og prúðleika. Sara á annað sýnt afkvæmi Funa frá Akri, en hann er eldri en Safír, fæddur 2015. Hann hlaut 8,30 í aðaleinkunn, undan Kiljani frá Steinnesi. Söru var haldið undir Sindra frá Hjarðartúni í sumar.

Það verður spennandi að sjá hverju þessar hryssur eiga eftir að skila en nú á næstu árum ættu afkvæmi þeirra af fara skila sér í dóm.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link