Hvenær byrjaðir þú á nýjum vana síðast?

  • 10. september 2021
  • Fréttir

Myndin er tekin á Íslandsmóti í Kópavogi seint á síðustu öld, af ungum og einbeittum Hinna með heilmikið framundan.

Föstudagspistill Hinna Sig

“When you want different for yourself, you have to start moving differently.
Old keys don’t unlock new doors.”

Til þess að breyta því sem er og færa fram línurnar, hækka ránna, eru bara tvær leiðir færar:

  1. Byrja á einhverju nýju sem þú hefur ekki gert.
  2. Hætta einhverju sem þú gerir en ættir kannski ekki að vera að gera.

Eins og ég sé þetta eru þetta einu valkostirnir í stöðunni ef þú ert ekki ánægð(ur) með stöðuna eins og hún er í dag. Ef þú ert með skýra sýn á það hvert þú vilt komast, hvar þú vilt vera og hvernig þú vilt að hlutirnir þróist hjá þér, en þú finnur líka að þú stendur í stað og þetta er ekki að gerast nógu greinilega. Þá er lag að skoða sig aðeins, því öll höfum við einhvers konar mynd í kollinum af því hvernig hlutirnir eiga að verða, smá ”vision”, hugmynd um hvað maður vill ekki satt? Samkvæmt hlutarins eðli er það líka þannig að það er oft töluverður munur á þessari mynd og stöðunni í dag, sem er náttúrulega alltaf eðli markmiða eins og þau virka.

Svo er að skoða, Hvað þarf ég að gera til þess að stytta þetta bil? Hver þarf ég að vera? Hvaða búnað þarf ég? Mataræði? Hreyfingu? Hvíld? Nýjan hest? Nýjan bíl? Skoðaðu fyrst rútínurnar, hvað er ég að gera sem færir mig nær markmiðinu? Eru þjálfunartímarnir heilsteyptir? Sinni ég þjálfuninni nógu vel? Gerir hver þjálfunartími gagn? Er ég að æfa hluti sem eiga að verða góðir? Eða er ég að eyða tíma í hluti sem skipta engu máli eða hreinlega tefja mig? Þegar þú ert búinn að skoða rútínurnar þínar og fara vel yfir málin. Skoðaðu þá þetta tvennt:

  1. Er eitthvað sem þú ættir að byrja að gera núna sem þú hefur ekki verið að gera?
  2. Er eitthvað sem þú ættir að hætta að gera sem er að tefja þig?

Að ná fram stórvægilegum breytingum yfir langann tíma byrjar einmitt svona. Byrja á einhverju nýju sem oftast, eða hætta einhverju gömlu sem ekki hjálpar, líka sem oftast.

Einfalt??

Kannski ekki alltaf, en síðan hvenær er best að allt sé einfalt? Hugrekki og hugarstyrkur er bara eins og vöðvi sem þarf að þjálfa eins og alla aðra. Hlutirnir verða ekkert léttari með tímanum heldur verður þú bara hraustari að taka á þeim.

Hvenær byrjaðir þú á nýjum vana síðast?

Eigið góða helgi,
Rock on Hinni Sig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link