„Hvers vegna dregur þú mig til fundar í þitt skelfilega hús?“
Guðni situr fyrrum heimsmeistarann Valíant frá Heggsstöðum. Mynd: Aðsend
Nýjasta tímarit Eiðfaxa er nú farið í prentvélarnar, stútfullt af skemmtilegu efni og fróðleik.
Í tímaritinu er m.a. að finna viðtal við Guðna Ágústsson þar sem hann rifjar upp störf í þágu íslenska hestsins. Hér segir hann frá því þegar hann fékk Kára Stefánsson á sinn fund til að fá hans aðstoð við að vinna bug á sumarexemi í íslenskum hestum.
„Mér er það einnig minnisstætt þegar ég boðaði Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, til fundar við mig niður í ráðuneyti. „Hvers vegna dregur þú mig til fundar í þitt skelfilega hús?“ sagði Kári þegar við hittumst. Ég bað hann um að leysa fyrir mig tvö vandamál sem steðjuðu að íslenskum landbúnaði. Annars vegar var það riðan í íslensku sauðkindinni og svo sumarexemið sem hrjáði íslenska hesta á erlendri grundu. Kári sagðist ekki geta lagt neitt til málanna með riðuna þar sem Sigurður Sigurðarson dýralæknir á Keldum væri á réttri leið með útrýmingu riðunnar með því að skera niður sýkt fé. „Hins vegar skal ég hjálpa þér með sumarexemið“ sagði Kári. Við Kári vorum báðir tals-menn þess að rannsókn á sumarexemi ætti að vera á vegum Íslendinga og í samvinnu við erlendar þjóðir og samningur á milli Félags hrossabænda og landbúnaðarráðuneytisins um þetta verkefni voru undirritaðir. Rannsóknarstöðin á Keldum hefur farið með verkefnið af okkar hálfu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en í vor voru fluttir út 30 íslenskir hestar með tilraunabóluefni svo nú sér von-andi til lands með lausn á þessu vandamáli sem hefur plagað útflutningsaðila og ekki síst íslenska hesta á erlendri grundu um langt árabil.“
Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH