Hvít jól koma Matthíasi í jólaskapið
Matthías Sigurðsson er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hann kemur úr hestamannafélaginu Fáki þar sem hann stundar hestamennsku með foreldrum sínum. Matthías stundar einnig nám við Menntaskólann við Sund.
Matthías er viðmælandi í Jólamola dagsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég var að byrja mitt fyrsta ár í Menntaskólanum við Sund og svo ríð ég út eftir skóla.
Með hvaða hross stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni með Dýra frá Hrafnkellstöðum í T2 og fjórgang og Tign frá Fornusöndum í gæðingaskeið.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
The Grinch
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Á jóladag einu sinni þegar ég var 8 ára prófaði ég Andra frá Vatnsleysu og var það mjög skemmtilegt
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Margar góðar gjafir erfitt að gera upp á milli.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Þegar við fjölskyldan hittumst öll á jóladag og spilum saman
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Ef ég nenni með Helga Bjöss
Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Home Alone
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Rjúpur
Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Þar sem það er kalt úti þessa dagana væri heppilegt að fá góðan kuldagalla í hesthúsið.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Hvít jól
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH