Ís-landsmót á Svínavatni – framlengdur skráningarfrestur

  • 10. mars 2020
  • Fréttir

Kæru landsmenn, nú fer að koma að því sem flestir hafa beðið eftir! Íslandsmót á Svínavatni verður haldið næstkomandi laugardag.

Keppt verður í A-flokk, B-flokk og tölti og verða vegleg peninga verðlaun fyrir fyrsta sæti!

Keppnin mun hefjast klukkan 13.00 á laugardaginn 14. mars.
Dagskrá eftirfarandi
• B-flokkur
• Úrslit í B-flokk
• A-flokkur
• Úrslit í A-flokk
• Tölt
• Úrslit í Tölt 

Vegna fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að lengja skráningarfrestinn til fimmtudags 12. mars.
Skráningar fara fram í sportfeng og er það hestamannafélagið Neisti sem er skráð fyrir mótið. Veðrið lofar góðu og ísinn frábær! Fjölmennum og höfum gaman, hlökkum til að sjá alla!

Bestu kveðjur

Svínavatns nefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link