Ístölt Austurlands
Mynd/Anja Kokoschka
Ístölt Austurlands verður haldið að Móavatni við Tjarnarland laugardaginn 25. febrúar nk. og hefst keppni kl. 10.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Tölt yngri en 16 ára
- Tölt áhugamanna
- Tölt opinn
- A flokkur
- B flokkur
Skráningargjald fyrir hverja skráningu er 3.000 krónur en í flokki 16 ára og yngri er gjaldið 1.500 krónur. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 22. febrúar. Skráningar hjá Guðrúnu Agnarsdóttur í síma 8933354 eða á [email protected]
Ef hesthúsapláss óskast skal það fylgja skráningu. Greiða skal skráningargjald um leið og skráð er.Ath. að ekki er hægt að skrá eftir lokun skráningarfrests.
Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri mun vinna sjónvarpsþátt um mótið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH