Jóhanna Margrét vann töltið
Þá er töltinu lokið í Meistaradeildinni í hestaíþróttum og einungis ein grein eftir áður en Meistarinn 2022 er krýndur.
Jóhanna Margrét Snorradóttir vann töltið á Bárði frá Melabergi en hún keppti sem villiköttur fyrir lið Hestvits/Árbakka. Ótrúlegur árangur en Jóhanna Margrét eignaðist sitt annað barn þann 1. febrúar síðast liðinn.
Liðaplattann hlaut Hrímnir/Hest.is
Árni Björn leiðir enn einstaklingskeppnina og Top Reiter liðakeppnina
Niðurstöður – Tölt – A úrslit
1. Jóhanna Margrét Snorradóttir – Bárður frá Melabergi – Villiköttur – Hestvit/Árbakki 8.33
2. Ragnhildur Haraldsdóttir – Úlfur frá Mosfellsbæ – Ganghestar/Margrétarhof 7.89
3. Teitur Árnason – Taktur frá Vakurstöðum – Top Reiter 7.83
4. Árni Björn Pálsson / Kastanía frá Kvistum / Top Reiter 7.78
5. Flosi Ólafsson / Forkur frá Breiðabólsstað / Hrímnir/Hest.is 7.56
6. Ásmundur Ernir Snorrason – Þokkadís frá Strandarhöfði – Auðsholtshjáleiga 7,39
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH