John og Konsert sigruðu B-úrslit
Þrír kampakátir keppendur mættu til leiks í B-úrslitum Meistaradeildar á þremur stórkostlegum gæðingum, John Kristinn á Konsert, Sigurður Vignir á Mætti og Siggi Sig á Sval. Keppnin var nokkuð jöfn, vekringarnir eru ólíkir að upplagi, en svo fór að John Kristinn og Konsert fóru með sigur af hólmi með gríðarskemmtilegri sýningu. Þeir mæta því til leiks ásamt sjö öðrum keppendum í A-úrslitum.
John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Konsert frá Korpu 7,40
Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Máttur frá Leirubakka 7,10
Sigurður Sigurðarson Lýsi Svalur frá Blönduhlíð 6,88
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH