Jólahátíð Sleipnis
Hestamannafélagið Sleipnir stendur fyrir sinni annarri jólahátíð í Sleipnishöllinni að Brávöllum laugardaginn14.des nk. á milli kl. 16-18.
Jólasveinarnir koma ríðandi frá Ingólfsfjalli, jólalúðrasveit leikur fyrir okkur, Doddi og Birgir spila á harmonikkurnar, teymt verður undir börnum. Magnús Kjartan Eyjólfsson spilar á gítar meðan gengið verður í kringum jólatré. Björgunarsveit Árborgar kemur með björgunarhesta og björgunarbíl. Kakó, kaffi, meðlæti og nammi á staðnum. Hestasýning frá Fjölbrautarskóla Suðurlands. Ýmislegt góðgæti á boðstólnum, Hellisbúinn með vörur beint frá býli og fleira og fleira. Hoppukastali fyrir börnin.
Allir hjartanlega velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH